05. febrúar 2012
Ford
|
mán. 14. des. 2009
Með 12 Ford vetnisrafbílum er stærsti vetnisbílafloti Evrópu nú á Íslandi
Ford Focus FCV vetnisrafbílarnir komu til landsins í hitastýrðum gámum.
Í dag tóku Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar og Jón Björn Skúlason framkvæmdastjóri Íslenskrar NýOrku á móti 10
vetnisrafbílum af gerðinni
Ford Focus FCV (Fuel Cell Vehicle). Bílarnir komu til landsins í síðustu viku með skipi Eimskipafélagsins, Reykjafossi, og var tekið á móti þeim á athafnasvæði Eimskipafélagsins að viðstöddum fjölmiðlum og samstarfsaðilum verkefnisins.
Bílarnir verða mikilvægt skref í uppbyggingu vetnissamfélags en sjö samsteypur bílaframleiðenda lýstu því yfir í haust að vetnisbílar væru komnir á það stig að vera tæknilega tilbúnir. Árið 2015, eða jafnvel fyrr, munu nokkur hundruð þúsund vetnisbílar verða komnir á markað samkvæmt yfirlýsingu bílaframleiðendanna.
Engin útblástur
Í ljósi Loftslagsráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna í Kaupmannahöfn sem stendur yfir þessa dagana er ánægjulegt að taka á móti bílum á Íslandi sem gefa engan útblástur frá sér.
Þá erum við hjá Brimborg afar stolt yfir þeim árangri að Ford bílar séu í meirihluta vetnisbílaflota Íslands sem nú telur 22 bíla.
Hér er um að ræða risastórt
visthæft skref sem við getum glaðst yfir. Brimborg mótaði umhverfisstefnu árið 1996 og höfum við frá árinu 2007 hvatt til visthæfra skrefa svo tryggja megi þau gæði sem við erum orðin svo vön í dag, fyrir komandi kynslóðir.
Brimborg hefur þó haft tengsl við rafbíla lengur en frá 1996. Á áttunda og níunda áratug síðustu aldar, í kjölfar orkukreppunnar 1978 studdi Brimborg dyggilega við tilraun Gísla Jónssonar prófessors við HÍ á Daihatsu rafmagnssendibíl og fyrirtækið flutti inn tvo aðra rafbíla á þessum tíma.
Það má vera ljóst að Íslendingar hafa það sem til þarf til að geta stigið visthæf skref á sviði samgangna. Við eigum nóg af hreinni orku sem okkur ber að nýta skynsamlega. Ein leiðin gæti einmitt verið sú að draga úr innflutningi eldsneytis og framleiða okkar eigið, t.d. vetni sem er hentugur orkuberi.
Það verður ekki síður athyglisvert að sjá hvernig þróunin verður á næstu árum en líklegt er að mikið vetnisrafbíla kapphlaup muni hefjast á næstunni en þar verður Ford í fararbroddi. Íslendingar eiga þar einnig nokkuð forskot og vonandi höfum við gæfu til að bera til að nýta það forskot vel.