Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

09. september 2010
Ford | mán. 28. des. 2009

Komin tími til að tengja með Sync kerfi Ford

Með Ford Sync er hægt að nýta nýjustu tækni á afar auðveldan máta.
Þróun í aukabúnaði bifreiða hefur verið gríðarlega hröð síðustu árin enda hefur velmegun verið með mesta móti og við slíkar aðstæður kalla neytendur eftir meira úrvali en venjulega.

Þá hefur aukabúnaður sem áður þurfti að sérpanta verið gerður að staðalbúnaði og eins hefur dýr tæknibúnaður færst niður línuna, ef svo má segja, þar sem margur lúxusbúnaðurinn fæst nú í vel útbúnum millistærðar- og smábílum eins og Ford Focus, Fiesta og Ka.

Tengimöguleikar mikilvægir

Það er þó ekki allur aukabúnaður eins mikilvægur. Það sem skiptir kannski einna mestu máli á næstu árum er nefnilega ekki endilega hvað eru margar stillingar á hitanum í framsætunum, hvort hraða bílsins er varpað á framrúðuna eins og í orrustuflugvél eða hvort afturhlerinn lokast af sjálfu sér heldur hvaða möguleikar verða á að tengjast hinum víðfeðma veraldarvef og hinum ýmsu tölvukerfum.

Ford hefur enn á ný verið á meðal þeirra fyrstu til að tileinka sér nýja tækni og með nýjustu útgáfu Sync kerfisins, sem kom fyrst á markað seint á árinu 2007 og er þróað í samstarfi við Microsoft, verður hægt að tengjast nánast hvaða hugbúnaði sem finna má á farsímum eigenda. Þetta þýðir að með Sync kerfi Ford bíla verður hægt að hlusta á streymandi tónlist í gegnum farsímann, láta Sync kerfið lesa upp skilaboð frá Twitter og það sem meira er þá verður Sync einnig raddstýrt sem auðveldar alla notkun kerfisins og einfaldar aðgerðir.

Viðskiptavinum hugnast möguleikarnir

Þá mun með nýjustu útgáfu Sync kerfisins verða mögulegt að tengja upplýsingakerfi Ford bíla við WiFi heita reiti og eins verður hægt að tengja svokallaðan USB pung við kerfið og þannig væri t.d. leikur einn fyrir fjölskylduna á ferðalagi um landið á Ford Escape að uppfæra Facebook síðuna, senda inn myndir á Flickr og spjalla á MSN.

Í dag eru um 70% Ford bíla vestanhafs seldir með Sync kerfi Ford og er því ljóst að kerfinu hefur verið tekið opnum örmum. Núverandi viðbót við kerfið á án vafa eftir að ýta hlutdeild kerfisins í heildarsölu enn ofar enda mikilvægt að geta nýtt tæknibúnað eins og tölvur, farsíma og nú bíla, sem best.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli