06. september 2010
Ford
|
mán. 4. jan. 2010
Hin þekkta 302 vél mun fást í nýjum Ford Mustang
Aðdáendur Mustang bílanna munu fagna nýjum 302, eða hinum fimm lítra V8 Ford Mustang.
Ford Mustang BOSS 302 bílarnir þóttu á sínum tíma gríðarleg tæki enda voru þeir í senn útlitslega kraftalegir og virkilega öflugir bílar. Vélin var upprunalega hönnuð fyrir
SCCA (Sports Car Club of America) Trans Am kappakstur þar sem hún var notuð í áðurnefndum Ford Mustang BOSS 302.
Nýjasta kynslóð Ford Mustang bílsins hefur nú hinsvegar séð dagsins ljós og má sjá að bílaframleiðandinn hefur tekið mið af
sýningarbíl SEMA sýningarinnar frá 2006 því þar var 302 bíll sýndur og vakti hann mikla athygli.
Bíllinn fær heitið
Ford Mustang GT 5.0 en fimm lítra merkingin samsvarar 302 rúmtommum og mun hún skila 412 hestöflum sem er veruleg viðbót frá eldri kynslóð bílsins. Það er því ljóst að nýi bíllinn verður með afbrigðum viðbragðsfljótur – og vissulega hefur hann útlitið með sér líka eins og tilfellið var með forverann.
Hagkvæmur en öflugur
Ford Mustang GT 5.0 mun fá sex gíra beinskiptingu en einnig sjálfskiptingu sem á eftir að verða vinsæll kostur þar sem bíllinn er sparneytnari í sjálfskiptu útgáfunni en þeirri beinskiptu, en slíkt er fremur sjaldgæft.
Þrátt fyrir mikla aflaukningu og meiri útbúnað hefur Ford samt tekist að halda þyngd bílsins niðri en hann bætir aðeins á sig 5 kílóum. Hámarkshraði bílsins verður um 250 km/klst og hefur hámarks snúningssvið vélarinnar verið hækkað úr 6500 snúningum í 7000 snúninga. Búast má við að kvartmílutími bílsins muni batna verulega og má giska á að hröðun bílsins í 100 km/klst verði í kringum 4,5 sekúndur þó þær tölur hafi ekki verið gefnar upp ennþá.
Þá er ótalið endurnýjað útlit villihestsins en tekist hefur að gera það enn kraftalegra en það var. Nýja Mustang bílsins er beðið með mikilli eftirvæntingu enda bjóða Mustang bílar jafnan mikið afl og gæði fyrir hóflegt verð.
Þrautreyndur klár
Ford Mustang hefur verið framleiddur
síðan 1964 og hefur hann lifað af olíukreppur og tískusveiflur og er í dag ekki síður tákn um hinn ameríska kraftabíl en hann var í upphafi framleiðslunnar. Árið 2007 seldust tveir endursmíðaðir
1969 módel af BOSS Mustang bílum á yfir hálfa milljón dollara. Þeir höfðu allt sem BOSS bílarnir voru frægastir fyrir, meðal annars
hokkíkylfu grafíkina á hliðinni.
Ekki verður þörf á að láta slíkar fúlgur af hendi þegar nýi Mustang bíllinn kemur á göturnar, jafnvel ekki þó hokkíkylfu grafíkin fylgi fljótlega á eftir í keppnisútgáfunni
BOSS 302R. Nú sem fyrr má það vera ljóst að þeir sem að kaupa sér Mustang eru að kaupa meira en bara bíl. Þeir eru að kaupa sér lífsstíl og taka þátt í merkilegu lífshlaupi þessa frækna bíls og gildir þá einu um hvort 1969 módelið er að ræða eða þann glænýja.