Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012
Ford | fös. 8. jan. 2010

Ný kynslóð Ford Ka komin í Brimborg

Nýr Ford Ka er komin í sýningarsal Brimborgar. Komdu og skoðaðu hann!
Fyrsti Ford Ka bíllinn kom á markað árið 1996 og var hann fáanlegur á nokkrum markaðssvæðum allt fram á síðasta ár og er því um einstaklega lífseigan bíl að ræða. Arftakans var því beðið með eftirvæntingu og nú er þeirri löngu bið, hvað Ísland varðar, lokið.

Nýi Ford Ka er algjörlega ný kynslóð og tekur hönnun hans mið af nýjustu hönnunarstefnu Ford þar sem áhersla er lögð á jafnvægi í sambýli bíls og umhverfis - orka bílanna er sjáanleg í hönnuninni. Nýr Ford Ka hefur þannig vaxið úr grasi og býður nú meiri öryggisbúnað, staðalbúnað og sérpöntunarmöguleika en nokkru sinni fyrr og mun hann þar að auki fást með afar sparneytinni dísilvél en eldri bíllinn fékkst einungis með bensínvél.

Reynsla komin á bílinn

Það er komin dágóð reynsla á nýjustu kynslóðina en hún kom víðast hvar á markað árið 2008. Ennfremur fékk bíllinn dágóða kynningu í síðustu James Bond kvikmyndinni, Quantum of Solace, þar sem hörkukvendið Camille Montes ók bílnum en hana túlkaði úkraínska leikkonan Olga Kurylenko.

Hinn nýi Ford Ka mun fást með tveimur vélum, 1,2 lítra bensínvél sem skilar 69 hestöflum og 1,3 lítra TDCi dísilvél sem fæst nú í fyrsta skiptið í Ka og skilar 75 hestöflum. Auk þess verða fáanlegar tvær búnaðarútfærslur, Ambiente sem er grunnútgáfan og Titanium sem er með ríkulegum útbúnaði.
Dísilbíllinn uppfyllir skilyrði Reykjavíkurborgar um visthæfa bíla sem fá frítt í stæði í 90 mínútur og því er Ford Ka ákjósanlegur smábíll fyrir íbúa höfuðborgarinnar. Bílar sem uppfylla þessi skilyrði eru merktir með bláu "P" tákni í verðlista Brimborgar. Eyðsla í blönduðum akstri er frá 4,2 lítrum á hverja 100 kílómetra og losun koltvísýrings aðeins 112 g/km og má því vera ljóst að Ford Ka er nettur pakki, en þó troðfullur af góðgæti.

Niðurstöður Euro NCAP

Digital, Tattoo og Grand Prix útbúnaðar uppfærslurnar

Reynsluakstur Carpages á Ford Ka

Reynsluakstur Carsuk á Ford Ka

Reynsluakstur Car and Driver á Ford Ka

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli