05. febrúar 2012
Ford
|
mán. 11. jan. 2010
Nýr alheimsbíll Ford, Ford Focus afhjúpaður í Detroit
Stórglæsilegur og nýr Ford Focus er væntanlegur á næsta ári á öll markaðssvæði.
Fyrstu myndirnar komu á netið í dag af nýjum Ford Focus sem væntanlegur er á næsta ári hjá bloggsíðunni
autoblog.com. Þar má sjá margar myndir af þessum glæsilega bíl sem er ætlað að veita nýrri stefnu
Alan Mulally, forstjóra
Ford, brautargengi en hann hyggst sameina krafta Ford í því sem hann hefur kallað „
One Ford“ áætluninni.
Ford fer á undan Detroit
Mulally hyggst nýta tæknilega getu og fjárhagslega burði Ford til þess að ná yfirburðastöðu á bílamarkaðnum en fyrirtækið var eini stóri bandaríski bílaframleiðandinn sem
afþakkaði ríkisaðstoð í kjölfar efnahagshrunsins vestanhafs. Horfið verður frá áherslu síðustu ára á stóra jeppa og mun fyrirtækið einbeita sér að smábílum og millistærðarbílum sem það telur að muni seljast sem aldrei fyrr á næstu árum eftir því sem eldsneytisverð hækkar og fólk sækir í sparneytnari og hagkvæmari bíla.
Það er því ljóst að Ford ætlar sér að nýta góða stöðu til sóknar á meðan margir helstu keppinautar fyrirtækisins berjast í bökkum.
Mikil hagræðing, enn betri bíll
Bíllinn mun verða eins útlits og að lang mestu leiti eins útbúinn, hvort sem bíllinn er keyptur í Shanghai, Berlín, Seattle eða Reykjavík og munu því stórar upphæðir sparast sem áður hafa farið í að laga bíla að mismunandi markaðssvæðum – nokkuð sem stundum hefur reynst nánast ómögulegt vegna mismunandi krafna og staðla.
Veraldarvefurinn hjálpar
Ford útskýrir að nú sé rétti tíminn til að setja á markað heimsútgáfur af Ford bílum. Fyrir þessu eru nokkrar ástæður en ein sú helsta er sú að með auknum tengslum fólks á milli vegna veraldarvefsins er smekkur viðskiptavina fyrirtækisins að verða einsleitari. Þetta gerir Ford kleift að höfða til viðskiptavina á mismunandi markaðssvæðum með sama bílnum.
Viðbrögðin beggja vegna Atlantshafsins hafa verið mjög góð og telja flestir fjölmiðlar að aðrir bílaframleiðendur muni heldur betur fá að finna til tevatnsins þegar Ford kemur með nýja bílinn á markað. Meiri útbúnaður, nýjasta tækni og meiri lúxus en gengur og gerist í bílum af þessari stærð muni duga til að velgja samkeppninni ærlega undir uggum.