05. febrúar 2012
Ford
|
fös. 15. jan. 2010
Ford styrkir stöðu sína sem annar stærsti bílaframleiðandi í Evrópu
Undir stjórn Alan Mulally hefur Ford styrkt stöðu sýna sem næststærsti bílaframleiðandi Evrópu.
Síðustu ár hefur
Ford bætt hlutfallslega stöðu sína á hinum evrópska bílamarkaði verulega og hyggur fyrirtækið á frekari sókn á næstu árum. Sú sókn mun fara fram með nýjum
Ford Focus, sem frumsýndur var í vikunni í Detroit og kemur á markað á næsta ári,
Ford Fiesta og
Ford Mondeo sem eru vinsælustu bílar Ford í Evrópu. Reyndar var Ford Fiesta söluhæsti bíll Ford í Evrópu á síðasta ári og næst mest seldi bíllinn í Evrópu.
Sækja harðar
Árið 2009 hefur semsagt verið gert upp og leiða niðurstöðurnar í ljós að Ford hefur styrkt stöðu sína sem annar stærsti bílaframleiðandi Evrópu með 9,1% markaðshlutdeild sem er aukning um 0,5% frá árinu 2008. Ford er því einn þeirra bílaframleiðenda sem mitt í slæmu árferði er að bæta stöðu sína og er á sama tíma að fara í gegnum mikla endurnýjun svo hægt verða að herða sóknina.
Búast má við því að skriðþungi Ford muni því aukast gríðarlega í ár og á næsta ári. Í ár verða 11 nýir Ford bílar kynntir, þar á meðal nýir
Ford Galaxy og Ford S-Max sem voru einmitt afhjúpaðir í Brussel fyrir skömmu og má því búast við að mikið verði um spennandi fréttir úr herbúðum Ford á næstunni.
Vinsælasti bíllinn í Bretlandi
Árangur Ford í Bretlandi vekur ávallt athygli en Ford fólksbílar hafa verið vinsælustu bílarnir í Bretlandi 33 ár í röð og atvinnubílar Ford hafa verið þeir vinsælustu 45 ár í röð með heildarmarkaðshlutdeild upp á 16,8%. Þetta er gríðarlega góður árangur og að mörgu leiti ekki síðri en árangur Ford í Bandaríkjunum þar sem
F150 pallbíllinn hefur verið mest seldi bandaríski bíllinn í 23 ár og mest seldi pallbíllinn í 31 ár með yfir 16 milljón eintök seld.
Það er ljóst að viðskiptavinir bera mikið traust til Ford enda er byggt á öruggum grunni. Fyrirtækið hefur ennfremur alla burði til þess að bæta sína stöðu á næstu árum því margir aðrir bílaframleiðendur hafa glímt við mikinn samdrátt og vandræði í rekstri. Undir stjórn
Alan Mulally hefur nýrri stefnu Ford verið fylgt en hann hyggst sameina krafta Ford undir átakinu „
One Ford“. Meðal verkefna þar er að beina athyglinni að millistærðarbílum og sparneytnari bílum og þannig marka skýra braut inn í framtíðina því Ford hyggst ekki síður láta kveða að sér á 21. öldinni en þeirri 20.