Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

09. september 2010
Ford | mán. 25. jan. 2010

Iðnaðarráðherra afhendir vetnisrafbíla í Brimborg

Iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, fór í stuttan bíltúr á vetnisrafbíl frá Ford.
Iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, afhenti í dag Ford Focus FCV vetnisrafbíla til notenda sem munu taka þátt í stóru vetnisverkefni á næstunni. Um er að ræða fyrirtækin Brimborg, Íslenska Nýorku, Keili, Orkuveitu Reykjavíkur, Landsvirkjun, Icelandic Hydrogen, Eldingu hvalaskoðun, Nýsköpunarmiðstöð og Skeljung. Fyrirtækin munu nota vetnisrafbílana daglega, við krefjandi aðstæður svo hægt sé að safna upplýsingum um eiginleika vetnisrafbíla í daglegri notkun.

Við tilefnið sagði ráðherra að Íslendingar hafi áður staðið frammi fyrir því að bylta orkunotkun sinni „Nær alger útrýming olíubrennslu til húshitunar með hitaveituvæðingu landsins var gífurlegt átak sem hófst í kjölfar kreppu. Erfitt er að ímynda sér gjaldeyrissparnaðinn eða jákvæð áhrif á umhverfi og lífsgæði sem þetta átak hefur skilað okkur í gegnum árin. Ég tel að í kjölfar þeirrar kreppu sem nú gengur yfir heiminn eigum við Íslendingar að snúa okkur að þeim geira þar sem við getum í raun dregið úr brennslu kolefnaeldsneytis og aukið hlut innlendra visthæfra orkugjafa. Hér er ég vitaskuld að tala um samgöngurnar. "

Fremst í vetni

Árið 1998 tók Ríkisstjórn Íslands ákvörðun um að auka hlut endurnýjanlegrar íslenskrar orku í samgöngum. Á heimasíðu ráðuneytisins stendur að vetnistæknin feli í sér mikla möguleika á sjálfbærri þróun og efnahagslegum framförum hér á landi. “Raftæknin er talin ein sú umhverfisvænasta sem völ er á. Þar sem vetni er notað er hreint vatn eini „útblásturinn“.
Vegna mikils framboðs grænnar raforku og vatni hér á landi er ljóst að þróun vetnisrafbíla er afar áhugaverð fyrir Íslendinga.“

Bandaríski bílaframleiðandinn Ford stendur mjög framarlega í rannsóknum á þessu sviði og eru nú 12 vetnisrafbílar frá Ford á landinu. Fyrirtækið hefur þegar markað sér þá stefnu að vera á meðal þeirra fremstu í svokölluðum „Zero Emission“ bílum.

Nauðsyn að þróa dreifikerfi

Vetnistæknin er tilbúin. Það telja tíu helstu bílaframleiðendur heims: Daimler, Ford, GM, Opel, Honda, Hyundai, Kia, Renault, Nissan og Toyota. Hafa bílaframleiðendurnir lýst því yfir að innan fimm ára verði hundruð þúsunda vetnisrafbíla settir á markað.

Þessi áform kalla á viðbrögð stjórnvalda um allan heim því nauðsynlegt er að byggja upp dreifikerfi fyrir vetni svo þetta megi gerast. Takmarkið er að ná viðunandi útbreiðslu vetnisstöðva fyrir 2015.

Íslendingar hafa þegar stigið fyrsta skrefið með vetnisstöð Skeljungs sem þjónar höfuðborgarsvæðinu. Sú framsýna ákvörðun ásamt komu Ford Focus FCV bílanna mun hafa mikið að segja um þróun vetnissamfélags hér á landi á næstu árum.

Njótum trausts

Ljóst er að bandaríski bílaframleiðandinn Ford ber mikið traust til íslensks samfélags. Ford telur landið henta einstaklega vel til að klára prófun Ford Focus FCV bílanna. Hér er góð tilraunaaðstaða og aðrar aðstæður þannig að kjörið er að rannsaka viðhorf neytenda til tækninnar. Þekking á vetniskerfum og rekstri vetnisstöðva er einnig mikil hérlendis. Taldi Ford því að Ísland væri besti vettvangurinn fyrir þessar rannsóknir.

Allir geta tekið visthæf skref. Það eina sem þarf að gera er að fylgjast með. Nú munu vetnisbílarnir fara að sjást í umferðinni. Kastljós umheimsins mun beinast að Íslandi á jákvæðan hátt á ný. Hrein orka, betri framtíð og íslenskt á tankinn er það sem koma skal.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli