05. febrúar 2012
Ford
|
mán. 1. feb. 2010
Ford Fiesta fær flotta einkunn hjá Top Gear
Ford Fiesta fær góða dóma hjá Top Gear og Econetic útgáfa bílsins fær fullt hús hjá Autoexpress.
Ford Fiesta hefur farið sigurför um heiminn undanfarið, bíllinn var
mest seldi bíll Bretlands á síðasta ári,
næst mesti seldi bíllinn í Evrópu á heildina litið og um þessar mundir er
Fiesta að fara að leggja undir sig Bandaríkin sem fyrsti algjörlega evrópski smábíllinn sem leggur þar land undir fót um mjög langt skeið.
Síðan 1976 hafa verið seldar tólf milljónir eintaka af Ford Fiesta og því er ljóst að afar margir deila skoðunum
Top Gear á þessum knáa smábíl, sem er reyndar ekki svo smár lengur en þó ávallt knár.
Ofursmábíll fyrir þig
En hvað
segja þeir nákvæmlega hjá Top Gear um
Ford Fiesta bílinn? Í stuttu máli þá segir Top Gear að bíllinn komi
Ford aftur á toppinn í þessum stærðarflokki bíla sem Top Gear kallar „
Supermini“. Þ.e. stærri gerðir smábíla sem eru í ákjósanlegri stærð fyrir þá sem vilja kaupa smábíl sem þó er nógu stór til að duga sem eini bíll heimilisins – þessu mætti snara á okkar ylhýra sem „ofursmábíl“.
Þá þykir Ford Fiesta hafa aksturseiginleika sem skari langt fram úr samkeppninni en þar er verið að tala um bíla eins og Fiat Sedici, Fiat Grande Punto, Kia Rio, Honda Jazz og Renault Clio.
Reyndar er talað um að Ford Fiesta virki í akstri sem bíll í næsta stærðarflokki fyrir ofan. Rými bílsins er gott, aksturseiginleikarnir á pari við mun dýrari bíla, útlit bílsins þykir hreint út sagt snjallt í þriggja dyra útgáfunni, sérstaklega þegar einhver hinna glæsilegu og
björtu nýju lita er valinn á bílinn.
Þá þykir gæðatilfinningin innandyra hafa aukist verulega en punkturinn yfir i-ið eru framúrskarandi aksturseiginleikar, nokkuð sem Ford hefur iðulega getað flaggað síðastliðin ár. Hinsvegar ber svo við nú að Top Gear segir aksturseiginleikana vera mun betri en bíll í þessum stærðarflokki „hefur rétt til“.
Hagkvæmur í rekstri
Eins og sönnum Top Gear dómi sæmir er óskað eftir kraftmeiri útgáfu af Ford Fiesta en hún er einmitt á næsta leiti því búist er við að
ST útgáfan komi á markað innan tíðar. Með
1,6 lítra bensínvél þykir bíllinn hinsvegar mátulega sprækur en umfram allt er hann hagkvæmur. Tekið er sérstaklega fram að ódýrt sé að tryggja bíla af þessari gerð, þeir séu ódýrir í viðhaldi og auðveldir í viðgerðum. Þessu til viðbótar fæst bíllinn í
Econetic útgáfu sem aðeins losar 99 g/km af CO2 og er hann því fáanlegur visthæfur í ofanálag. Reyndar má minnast á að tímaritið
Autoexpress gaf Econetic útgáfu bílsins fullt hús stiga.