05. febrúar 2012
Ford
|
mán. 8. feb. 2010
Ford í Sviss er undantekningin sem sannar regluna
50 eintök af sérútgáfu svissneska innflytjandans af Ford Focus RS munu verða seldar.
Ford í Sviss virðist vera undantekningin sem sannar regluna og minnir framtak Ford þar á nokkrar þekktar tilraunir Svisslendinga á árum áður sem menn eins og
Peter Sauber, sem meðal annars hefur rekið
Formúlu 1 lið, stóðu fyrir og
Franco Sbarro sem hannaði vægast sagt óvenjulega og einstaka bíla. Þá má náttúrulega ekki gleyma
Rinspeed sem annað slagið sendir frá sér ofur öfluga bíla.
En hvað hefur
Ford gert? Jú, fyrirtækið hefur hannað
sérútgáfu af hinum margfræga
Ford Focus RS sem þó er aðeins ætluð fyrir markaðinn í Sviss. Tilefnið er
40 ára afmæli Team RS verkfræðideildar Ford.
Útlitsbreyting fyrst og fremst
Í fréttatilkynningu um bílinn kemur fram að um óbreyttan Ford Focus RS er að ræða enda ekki talin mikil þörf á að kosta miklu til þar því bíllinn er afar öflugur fyrir. Sérútgáfan er því fyrst og fremst útlitsleg hönnun sem er ætlað að höfða til þeirra sem elska
rallý og vilja vera minntir á rallý á hverjum degi en einmitt til þess verður bíllinn að vera nothæfur á daglegum grunni. Það er kannski þessvegna sem engar vélfræðilegar breytingar hafa verið gerðar á bílnum.
Til að ákvarða útlit bílsins fór fram samkeppni á netinu og var útlit bílsins svo valið úr innsendum lausnum. Niðurstaðan varð hvítur bíll, sem er mjög í anda Ford, með grænum og svörtum merkingum. Punkturinn yfir i-ið eru svo 19 tommu
OZ Superturismo GT álfelgur í svörtu.
Bíllinn er svo kyrflilega merktur innandyra þeim
Mikko Hirvonen og
Jarmo Lehtinen sem aka
keppnisbíl Ford í heimsmeistarakeppninni í rallýi.
55.900 Svissneska franka kostar bíllinn og munu aðeins verða seld 50 eintök.
Deila