Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

01. ágúst 2010
Ford | þri. 16. feb. 2010

Ford Transit Connect er sendibíll ársins í Bandaríkjunum

Ford Transit Connect rafbíllinn er forvitnilegur kostur fyrir fyrirtæki sem láta sig umhverfið varða.
Valið er fyrir nokkrar sakir merkilegt en þó kannski helst fyrir þær sakir að Ford Transit Connect er fyrsti evrópski sendibíllinn frá Ford sem fæst í Bandaríkjunum. Þó kemur fleira til því bíllinn býður upp á afar sveigjanlega aflrás ef svo mætti að orði komast því hann fæst í dísilútgáfu, bensínútgáfu, gas- og rafmagnsútgáfu.

Alls unnið sex sinnum

Sigurinn hreppti Ford hinsvegar vegna þess að Ford Transit Connect þykir einfaldlega bera af í hönnun, tækni, aksturseiginleikum, þægindum og í verði miðað við allt annað sem í boði er.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Ford vinnur titilinn hjá Car&Driver. Á síðasta ári var það Ford F150 en alls hefur Ford unnið titilinn sex sinnum á þeim sautján árum sem hann hefur verið veittur. Mikil áherslubreyting þykir þó hafa orðið núna þar sem fyrirtæki horfa að nokkru leiti frá stórum sendibílum og renna nú hýru auga til minna mengandi sendibíla eins og Ford Transit Connect.

Rafbíll og gasbíll fáanlegir

Ford Transit Connect er einnig vinsæll bíll í Evrópu en yfir 650 þúsund eintök hafa selst af núverandi gerð. Á alþjóðlegu bílasýningunni í Chicago voru nýjustu útgáfur bílsins kynntar til sögunnar en það eru áðurnefndir gas- og rafbílar. Talið er að rafbíllinn muni verða sérlega hentugur sem vinnubíll t.d. fyrir símafyrirtæki eða sendla sem starfa í borgum en gasbíllinn er talinn afar hentugur fyrir leigubílstjóra.

Scott M. Staley er yfirverkfræðingur þróunardeildar Ford og er Íslandi góðu kunnugur enda ekki langt síðan hann sótti málþing á vegum Brimborgar á Íslandi. Í gegnum starf sitt hefur hann yfirumsjón með þróun Ford á bílum sem nýta óhefðbundna orkugjafa og segir hann að leitað hafi verið til Ford eftir bílum af þessu tagi þar sem fyrirtæki leita nú allra leiða til að draga úr koltvísýringslosun sinni. Með öðrum orðum finnur Ford fyrir aukinni eftirspurn sem fyrirtækið hefur séð sér fært að svara með þessum tveimur visthæfu útgáfum sendibílsins.

Ford Transit Connect Electric og Ford Transit Connect Taxi eru þær afurðir sem ætlað er að svara auknum kröfum fyrirtækja um umhverfisvænni sendibíla og fyrstu sendibílarnir í þessum geira sem eru fullbúnar afurðir.

Taxi, eða leigubílaútgáfan af Ford Transit Connect, gengur fyrir náttúrulegu gasi (CNG) en slíkum bílum hefur einnig verið breytt fyrir metangas. Ástæða þess að sú leið var farin er að rafbílar geta ekki ekið allan sólahringinn á vöktum eins og þarf að vera hægt á leigubíl. Bílar sem ganga fyrir gasi myndu henta afar vel sem leigubílar á Íslandi og myndu þeir lækka rekstrarkostnað við leigubílaakstur verulega en um leið vera mun hentugri en fólksbílarnir sem venjulega eru notaðir í leigubílaakstur á Íslandi.

Ford reiknar með að smíða 1000 rafbíla á ári fyrstu fimm árin á meðan tæknin er þróuð enn frekar en framleiðslan á gasbílnum verðu sennilega mun meiri.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli