05. febrúar 2012
Ford
|
fim. 25. feb. 2010
Brekkukóngurinn F450 í nýrri útgáfu
Brekkukóngurinn er komin í nýrri útgáfu...
Bandaríkjamenn hafa lengið lifað fyrir pallbíla enda eru þeir taldir henta afskaplega vel fyrir land víðáttunnar þar sem mikið notagildi heimilisbílsins, nú eða vinnubílsins, skiptir nánast öllu máli.
Ford hefur í áratugi stólað inn á pallbíla markaðinn og þó minni bílarnir eins og
F150 hafi verið mest seldu bílarnir ár eftir ár í Bandaríkjunum hafa menn alltaf rennt hýru auga til brekkukóngsins –
F450.
Brekkukóngs heitið kemur ekki til af ástæðulausu. Bíllinn er nefnilega útbúin gríðarlega öflugri vél, m.a. 390 hestafla 6,7 lítra túrbódísil V8 vél sem skilar hvorki meira né minna en 995 NM af togi.
Bíllinn fæst einnig með 6,2 lítra bensínvél sem skilar 385 hestöflum sem líklegt er að verði vinsælasta vélin í Bandaríkjunum.
Ford leggur mikla áherslu á að sparnaður aukist um leið og afl eykst. Að hluta til má þakka það nýrri sex gíra sjálfskiptingu sem hjálpar bílnum til að vera með einna bestu dráttargetuna í sínum flokki en bíllinn getur dregið rúmlega 11 tonna þyngd. Báðar vélarnar fást fyrir alla Super Duty línu Ford, þ.e. frá F250.
Einstök vél
Pallbílsins hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu þrátt fyrir að nokkur samdráttur hafi orðið í sölu
pallbíla vestanhafs. Margir vinnubílar eru komnir á tíma í endurnýjun eftir litla sölu síðustu tvö árin og reiknar Ford því með að salan muni ganga nokkuð vel.
Þeir sem festa sér bíl af þessari gerð fá talsvert af tækninýjungum til að gorta sig af á meðal félaganna. Meðal annars er vél bílsins úr þjöppuðu grafít járni en sú blokkartegund er í fyrsta skiptið notuð í vinnubíl af þessu tagi vestanhafs. Þá geta dísilvélarnar ekið á lífrænt blönduðu eldsneyti, 20% lífdísil og 80% dísil sem dregur úr rekstrarkostnaði bílsins auk þess að hafa jákvæð áhrif á útblástur. Bensínvélarnar geta líka nýtt sér
E85 bensín og etanól blöndu.
Það má vera ljóst að Ford er vel í stakk búið að verja sína stöðu sem leiðandi í flokki öflugra pallbíla miðað við þetta.