Ken Block nýtur stuðnings aðstoðarökumanns síns, Alex Gelsomino en þeir hyggjast vinna 100 Acre Wood Rallýið, sem verður nú um helgina, í fimmta skiptið í röð.
Það ætla þeir að gera á hinum ofur lipra og heldur betur vígalega Monster Energy Ford Fiesta rallýbíl sem Ken Block fékk til umráða fyrr í vetur.
Bíllinn er hreint út sagt rosalegur. Um er að ræða 2,0 lítra fjögurra strokka Ford bensínvél sem með túrbínu skilar um 490 hestöflum við 8000 snúninga. Aflinu er komi í götuna með fjórhjóladrifi og mun Ford Fiesta bíllinn verða notaður mjög víða. Bíllinn verður meðal annars notaður fyrir hina frægu X-games síðar á árinu en þá verður aðeins skrúfað niður í aflinu og mun bíllinn þá skila 330 hestöflum og ekki er langt síðan að Ken Block keppti á honum í snjó-drift keppni.
Núna fyrir helgina eru þeir Block og Gelsomino hinsvegar að spreyta sig á bílnum svo þeir geti sigrað fimmta skiptið í röð í hundrað ekru skógarrallinu. Af því tilefni hafa þeir sett myndband inn á Youtube sem er stórskemmtilegt enda mikið að gerast.
Svo er bara að sjá hvernig þeim gengur um helgina.
Sjáðu fleiri myndbönd af Ford Fiesta bílnum þeirra Ken og Alex
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan