Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

01. ágúst 2010
Ford | mán. 1. mar. 2010

Viðskiptavinir Toyota flýja margir til Ford

Ford Fusion nýtur góðs af því að koma sérlega vel út úr áreiðanleika könnunum.
Bílaframleiðendur í Bandaríkjunum eru enn að sleikja sárin eftir erfitt síðasta ár sem var það versta í bílasölu í Bandaríkjunum í þrjátíu ár. Toyota mun þurfa að taka á sig enn frekari skell vegna innköllunar bíla og er talið að aðrir bílaframleiðendur muni njóta góðs af flóttanum frá Toyota. Sá bílaframleiðandi sem þar er helst nefndur til sögunnar er Ford en reiknað er með að bílasala Ford muni aukast um 35% í febrúar mánuði en sölutölurnar munu berast á næstu dögum.

Fyrir vandræði Toyota var því hinsvegar spáð að aukning Ford í mánuðinum yrði 9-14% og er því ljóst að innkallanir japanska bílaframleiðandans hafa gríðarleg áhrif, ekki bara á Toyota heldur líka á aðra bílaframleiðendur.

Innkallanir bílaframleiðenda algengar en mis alvarlegar

Í bílaiðnaðinum eru innkallanir nokkuð tíðar enda eru gæðakerfi flestra bílaframleiðenda þannig að hverskonar smávægilegir gallar uppgötvast fyrr en seinna. Næsta skref er svo að innkalla alla bíla með þeim galla og skipta út gallaða stykkinu fyrir endurhannað stykki. Dæmigerðar innkallanir af þessu tagi geta verið innkallanir til að skipta um rofa sem ekki virka sem skyldi, eða ljósker sem ekki eru þétt. Stöku sinnum koma þó upp alvarlegri innkallanir þar sem vafi leikur á því að öryggi bílanna sé eins og það á að vera.

Consumer Reports í Bandaríkjunum telja að Ford njóti góðs af árangri fyrirtækisins í áreiðanleika prófunum síðustu árin þar sem Ford kemur sífellt betur út. Ford Fusion er einn vinsælasti bíllinn á Bandaríska markaðnum í dag og hefur hann komið mjög vel út og meðal annars verið ofar í nýlegum áreiðanleika könnunum en Honda Accord og Toyota Camry sem oft hafa vermt efstu sætin.

Í allt eru bílar frá Ford í sjö sætum af tíu sem Consumer Reports veitir verðlaun fyrir, árangur sem verður að teljast mjög góður. Það er því kannski ekki undarlegt að Ford verði fyrir valinu hjá þeim sem leita að nýjum bíl í dag.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli