Gísli Jón og Valmundur hjá Brimborg dást að hinum risastóra Ford F350 bíl.
Ford F350 er fyrir mjög verklegt farartæki, útbúinn stórum og öflugum vélum, sterkbyggður, rúmgóður og hlaðinn nútímalegum búnaði. Bíllinn sem um ræðir er af 2008 árgerð og eins og sjá má fór bíllinn í gegnum viðamiklar breytingar og er því enn verklegri fyrir vikið.
Það tók um sex mánuði að breyta bílnum fyrir 54 tommu dekk. Eftir breytinguna eru 55 cm undir drifkúlur bílsins en fyrir breytingu er sú hæð 20 cm. Það er því ljóst að um verulega breytingu er að ræða.
Bílar sem hafa farið í gegnum þetta miklar breytingar eru sjaldgæf sjón, sérstaklega á meginlandinu þar sem svona miklar breytingar eru í flestum tilfellum ekki leyfðar.
Það má því segja að það séu ákveðin forréttindi að geta ferðast á trukk af þessari stærð um landið en stefnt er á að nota bílinn við ferðaþjónustu á landinu næsta sumar.
Nýir Ford bílar
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan