05. febrúar 2012
Ford
|
fim. 25. mar. 2010
Öflugasti lögreglubíll Danmerkur gæti verið Ford Focus RS
Danska lögreglan getur nú fest kaup afar öflugum Ford Focus RS lögreglubíl.
Það hefur lengi verið vitað að til að eltast við afbrotamenn þarf lögreglan góða bíla. Þeir þurfa ekki eingöngu að vera sterkir, öruggir og endingargóðir heldur þurfa þeir helst að vera nægjanlega öflugir til að geta veitt eftirför ef nauðsyn krefur.
Við þær aðstæður sem lögreglan þarf að hefja eftirför getur það hinsvegar ráðið úrslitum um velgengni aðgerðarinnar hvort lögreglan er á vel hönnuðum og öflugum lögreglubíl eða ekki.
Snöggur frá A til B
Ford Focus RS er einmitt rétta verkfærið til að tryggja sem öruggasta eftirför. Ford Focus RS er hannaður af
RS deild Ford bílaframleiðandans, þeirri sömu og smíðar meðal annars
rallýbíla framleiðandans sem notaðir eru í heimsmeistarakeppninni í rallý (
WRC).
Græna skrímslið (
eiturgrænt er líklega þekktasti liturinn á Ford Focus RS) eins og Ford Focus RS er iðulega kallaður er gríðarlega öflugt tæki. 2,5 lítra fimm strokka vél bílsins skilar 305 hestöflum sem þýðir að bíllinn getur náð 100 km/klst á aðeins 5,9 sekúndum. Það er hinsvegar ekki aðalsmerki bílsins heldur gripið sem bíllinn býr yfir og aksturseigineikarnir. Ford Focus RS er hreinræktaður akstursbíll og sem slíkt verkfæri þá er hann afar snöggur yfirferðar.
Ekki fráleit hugmynd
Það að lögreglan notist við sportbíla við eftirlit þykir sumum ef til vill vera fráleit hugmynd. Í huga flestra á lögreglan að nota áreiðanlega, örugga og endingargóða bíla til þess að eltast við afbrotamenn eins og áður segir.
Hinsvegar er hlutverk lögreglunnar fjölbreyttara en svo að hún elti bara afbrotamenn daginn út og daginn inn. Forvarnir eru mikilvægar í starfi lögreglunnar og þar koma sportbílar sterkir inn. Lögreglan í Bretlandi hefur til dæmis
notast við sportbíla frá hinum ýmsu framleiðendum í gegnum tíðina til þess að brjóta ísinn ef svo má segja, svo hægt sé að nálgast börn og unglinga sem oft eru örlítið smeyk við yfirvaldið. Meðal frækinna breskra lögreglubíla má nefna
Ford Escort Cosworth og
Ford Sierra Cosworth.
Sportbílar eru í augum margra barna og unglinga algjörlega ómótstæðilegir og ef eitthvað er verða þeir skyndilega meira spennandi ef þeir eru komnir með ljós og sírenur.
Það getur því vel hugsast að danska lögreglan slái til enda þekkir hún Ford bílana nú þegar þar sem Ford Focus og Mondeo bílar eru þegar
í þjónustu lögreglunnar og hafa verið um nokkuð langt skeið.