Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012
Ford | þri. 6. apr. 2010

Fimm lítra Mustang slær út Camaro SS og Challenger SRT8

Ford Mustang slær samkeppninni við.
Motor Trend er með svarið sem fyrsta bílablaðið til að prófa hinn nýja Mustang 5.0 við hlið Camaro SS og Challenger SRT8 sem báðir hafa notið mikillar hylli vestan hafs frá því þeir komu á markað.

Svona á nútímaútgáfa af kraftabíl að vera

Uppskriftin af kraftabílum (muscle car) er fremur einföld og þrautreynd. Það var 1967 sem Road Test tímaritið skilgreindi fyrst hvað kraftabíll er. Tímaritið sagði kraftabíla vera litla bíla með stórum vélum. Vissulega kemur meira til í dag. Nýi bíllinn er þannig af Motor Trend sagður vera náskyldur upprunalegu hugmyndinni um kraftabíl, léttur bíll með lipra yfirbyggingu og undirvagn sem er barmafull af V8 afli. Það leikur engin vafi á því í huga þeirra sem prófuðu bílinn að hann býr yfir betri aksturseiginleikum en Camaro SS og Challenger SRT8. Til viðbótar við það býr Ford Mustang 5.0 yfir fágaðri innréttingum og betri tækni.

Niðurstaðan er augljóslega mjög hagstæð Ford. Ekki er nóg með það að hinn nýi fimm lítra Ford Mustang sé afar sparneytinn og í raun hagkvæmur bíll miðað við að um kraftabíl sé að ræða, þá er hann líka með besta aflhlutfallið af bílunum þremur, þrátt fyrir að vera með fimm lítra vél á móti 6,2 lítra vél í Camaro SS og 6,1 lítra vél í Challenger SRT8.

Niðurstaðan er með öðrum orðum sú að Ford Mustang er konungur kraftabílanna eins og er og það í byrjun baráttunnar. Eins og Mustang aðdáendur þekkja er afar líklegt að Ford kynni hverja sérútgáfuna á fætur annarri, sumar hverjar sem munu verða fáanlegar með mun öflugri vélum en hinn 412 hestafla fimm lítra bíll er búinn.

Ódýrari og öflugri

Það er því ljóst að Ford Mustang er sannkallaður kraftabíll eins og þeir voru í gamla daga, ódýr og öflugur. Verð Mustang 5.0 í Bandaríkjunum er 30.495 dollarar fyrir grunnútgáfuna sem eru rúmlega 3,9 milljónir íslenskra króna. Camaro SS kostar í sinni grunnútgáfu 31.795 dollara sem er tæplega 4,1 milljón og Challenger SRT8 kostar hinsvegar helling í viðbót, 43.716 dollara sem eru rúmar 5,6 milljónir.

Það er því ljóst að keppinautar Ford Mustang eiga við ramman reip að draga og baráttan mun að öllum líkindum bara verða erfiðari á næstu árum þar sem velgengi Ford í hruninu hefur styrkt samkeppnisstöðu fyrirtækisins verulega á undanförnum mánuðum.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli