Afmælissýning Íslenska Mustang klúbbsins og Brimborgar á morgun
Ford Mustang sýning á morgun hjá Brimborg.
Í bílablaði Morgunblaðsins í dag birtist viðtal við einn klúbbfélagana sem verður einmitt með bíl á sýningunni. Aðdáendur Ford Mustang bíla eru afar áhugasamir um merkið eins og sjá má af viðtalinu enda kannski ekki nema von þar sem Ford Mustang er einn af eftirsóttustu og vinsælustu sportbílum samtímans.
Það ætti því að verða gaman að kynnast þessum ástríðufullu Ford Mustang eigendum og óaðfinnanlegu bílunum þeirra nánar á morgun. Aðgangur er ókeypis og kaffi og kleinur verða á boðstólunum. Börn eru að sjálfsögðu velkomin og má búast við því að þeim þyki mikið til bílanna koma enda eru sumir þeirra afar kraftalegir og líflegir að sjá.
Munið eftir afmælissýningunni á morgun á milli kl. 10 og 16.
Nýir Ford bílar
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan