05. febrúar 2012
Ford
|
mið. 5. maí 2010
Ford á siglingu í Danmörku
Ford Fiesta hefur slegið í gegn.
Mars mánuður síðastliðinn var til að mynda einn söluhæsti mánuður
Ford í Danmörku frá upphafi en þá jókst bílasalan, samanborið við sama mánuð árið á undan, um hvorki meira né minna en 67,8%.
Þessi vöxtur er þó ekki einsdæmi því
Ford hefur um samfellt tíu mánaða skeið aukið hlutdeild sína í Evrópu. Í Danmörku er hlutdeild Ford hinsvegar um þessar mundir 10,5% sem er hæsta hlutdeild Ford í Danmörku síðastliðin 12 ár.
Ford Fiesta mest seldur í Evrópu
Bíllinn sem Danir hafa tekið af svona miklu ákafa og stendur undir stórum hluta sölunnar er hinn nýi
Ford Fiesta. Ford Fiesta hefur reyndar einnig notið gríðarlegra vinsælda í Evrópu en þar hafa rúmlega 67 þúsund bílar selst. Fiesta kemur einnig sterkur inn í Bandaríkjunum þar sem bíllinn er nýr á markaði.
Ford Fiesta er því mest seldi bíllinn í Danmörku, og reyndar er Ford Fiesta líka mest seldi bíllinn í Evrópu.
Ford Focus stendur sig einnig mjög vel enda hefur hann náð þriðja sæti í Danmörku yfir söluhæstu bílana það sem af er ári.
Það má ennfremur reikna með því að viðgangur Ford verði góður í Evrópu í ár því framundan eru kynningar á mörgum nýjum bílum frá Ford.