05. febrúar 2012
Ford
|
fös. 14. maí 2010
Ameríkuferð á Ford Fiesta 2.0?
Nýr Ford Fiesta fer nú netvæddur þvert yfir Bandaríkin.
Verkfræðingar
Ford ætla sér að kanna notkunarmöguleika hins nýja
Ford Fiesta bíls sem mun verða sítengdur við netið á leið sinni þvert yfir Bandaríkin. Hægt verður að fylgjast með ferðalaginu á sérstakri vefsíðu verkefnisins
AmericanJourney2 og geta tölvunotendur sent inn tillögur að stöðum sem ökumenn Ford Fiesta bílsins geta heimsótt á leið sinni þvert yfir Bandaríkin. Hægt verður að senda tillögur að söfnum, matsölustöðum eða forvitnilegum akstursleiðum beint í bílinn og munu tillögurnar birtast á stórum skjá í mælaborði bílsins og mun aðstoðarökumaðurinn svo vinna úr upplýsingunum.
Sjálfvirkt bílablogg
Þá verður bíllinn einnig útbúin hugbúnaði sem gerir bílnum sjálfum kleift að senda með reglulegu millibili myndir frá ferðinni yfir Bandaríkin inn á síður eins og
Twitter og
Facebook. Bíllinn notar til þess þrjár myndavélar sem staðsettar eru í bílnum og á honum.
Hægt verður að tala um notendur bílsins í alveg nýjum skilningi því segja má að um verði að ræða eitthvað annað og meira en bara bíl. Hinn nýi Ford Fiesta verður einskonar sítengdur nútímabíll og má vera ljóst að þessi tækni opnar gríðarlega möguleika fyrir ferðalanga. Það væri til dæmis hægt að sjá fyrir sér að ferðalangar langt að heima, t.d. í sumarfríinu í Þýskalandi geti haft beint samband við góða vini heima fyrir sem geti leiðbeint fólki á áhugaverða staði eða hreinlega sent áfangastaði í bílinn. Fólk gæti þá einnig deilt myndum og bloggað reglulega um ferðir sínar á hinum tæknilega Ford Fiesta.
Glaður eða leiður?
Eitt áhugaverðasta forrit bílsins er hinsvegar afar sérstakt. Það metur umhverfi bílsins, veðurfar, hraða og á hvernig vegi bíllinn er að aka hverju sinni. Með forritinu getur bíllinn sagt til um hvort hann er glaður eða leiður. Ef hinn tæknivæddi Ford Fiesta er t.d. fastur í umferð og alltaf að taka af stað og stöðva þá verður hann leiður en ef hann kemst út í víðáttuna og getur ekið skemmtilega sveitavegi verður hann glaður. Þetta mun væntanlega að miklu leiti endurspegla skap ökumannsins og má hugsa sér að með þessu móti sé hægt að stunda meðvitaðan akstur, sér til ánægju, í meira mæli en áður hefur verið mögulegt, í það minnsta hvað tækni varðar.
Öflugur hugbúnaður og vélbúnaður
Bíllinn býr yfir tveimur þráðlausum mótöldum sem nýta sér 4G tækni en þar sem hún er ekki allsstaðar komin í gagnið í Bandaríkjunum verður líka 3G tækni til staðar. Tölvan sem sér um allan hugbúnaðinn er 2,6 Ghz PC tölva með 80 GB svokölluðum
Solid State harðdisk en þeir hafa enga hreyfanlega hluti og henta því afar vel í bíl.