Bandaríkjamenn hafa lengi hrifist af stórum og öflugum bílum. Nú virðist hinsvegar vera orðin breyting á, því breiðara úrval bíla fæst nú í Bandaríkjunum en oft áður. Hinn lipri Ford Fiesta er nefnilega að sigra Bandaríkin og tekst nú á við afar óvenjulegan mótherja, Lamborghini Gallardo, og sigrar... á sinn hátt.
Ford Fiesta er kannski ekki að mörgu leiti sambærilegur Lamborghini Gallardo og þar sem Lamborghini er snöggur er Ford Fiesta lipur, það er hans styrkleiki og það sýnir Ford Fiesta svo um munar í stuttu myndskeiði sem nú er sýnt á Youtube.
Það er leikkonan Brittani Taylor sem hefur meðal annars haldið úti vídeósíðu um hinn nýja Ford Fiesta sem hefur tekið ástfóstri við bílinn. Brittani þessi Taylor tók upp á því að prófa hinn vinsæla Ford Fiesta á móti hinum mjög svo öfluga Lamborghini Gallardo og er myndbandið eitt margra fjörlegra myndbanda sem Brittani hefur gert undanfarið.
Þó flestir geti sér til um hvernig sú viðureign Ford Fiesta og Lamborghini Gallardo hafi farið á beina kaflanum þá er skemmst frá því að segja að Ford Fiesta stóðst stóðhestinum ítalska snúning, þegar kom að þröngum beygjum, keiluakstri, almennum lipurleika og að sjálfsögðu hvað hagnýti varðar.
Brittani var sérstaklega hrifin af því hvað Ford Fiesta gat boðið stórt farangursrými samanborið við Lamborghini Gallardo bílinn og að auki þótti henni mikið til aukabúnaðarins koma. Ekki hefur Lamborghini Gallardo til dæmis stefnuljós í speglum eða ræsi hnapp eins og Ford Fiesta.
Hægt er að sjá fleiri myndskeið með Brittani Taylor og öðrum á vefsíðunni Fiesta Movement sem hefur verið tileinkuð hinum vinsæla Ford Fiesta í Bandaríkjunum.
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan