Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | þri. 15. nóv. 2005

Ford Focus ST betri en VW Golf GTi

Ford Focus ST betri en VW Golf GTi
Ford Focus ST betri en VW Golf GTi

Hið þekkta bílablað Auto Express gerði nýverið úttekt á flokki minni sportbíla og valdi blaðið Focus ST sem þann besta. Blaðamenn Auto Express eru ekki einir um hrifningu sína á Ford Focus ST því bílablaða- og fréttamenn alls staðar í Evrópu hafa keppst við að ausa lofi á bílinn. Morgunblaðið segir til að mynda í sínum dómi að Ford Focus ST sé magnaðasta framlag Ford í Evrópu til alvöru sportbíla.

Í sérflokki að mati Auto Express

Auto Express tók nýjustu bílana í þessum sportbílaflokki fyrir í nóvemberhefti sínu. Þar er Ford Focus ST valinn besti bíllinn í samanburði við Golf GTi, Astra VXR og Corolla TTE. Að mati blaðamanna eru Focus ST og Golf GTi í sérflokki. Þar með hefur Focus ST nú velt Golf GTi úr sessi efsta sætisins, en Golf hefur um langt skeið verið á toppnum í þessum flokki.

Góð sæti

Í dómi sínum 11. nóvember segir Morgunblaðið meðal annars: Ford TeamRS hefur tekið bílinn í gegn líka að innan. Hann er með einhverjum þeim mögnuðustu Recaro-sportsætum sem undirritaður hefur prófað. Þau gersamlega líma ökumanninn í sætið og eru stillanleg á átta vegu. Komnir eru álpedalar, sérhannað stýri en öll þau þægindi, sem menn eiga að venjast í „venjulegum“ C-flokks-bílum, eru líka til staðar, eins og loftkæling, hiti í sætum, rafmagn í öllum rúðum og ABS, EBS, ESP og annar öryggisbúnaður.

Á leið í Brimborg

Brimborg reiknar með að geta boðið þennan þrælskemmtilega og spennandi sportbíl í byrjun mars á næsta ári. Ekki eru enn komnar upplýsingar um verð og búnað en þær munu þó liggja fyrir innan skamms. Fylgist því með hér á heimasíðunni.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli