Ford Fiesta er enn bestur að mati Diesel Car tímaritsins
Bretarnir hafa kolfallið fyrir útliti og aksturseiginleikum Ford Fiesta
Ritstjóri Diesel Car, Ian Robertson, hafði þetta að segja við afhendingu verðlaunanna: „Það er frábært að aka Ford Fiesta, hann lætur vel að stjórn og stýringin er nákvæm. Þessi blanda góðs útlits, sparneytinnar dísilvélar og hressandi hönnunar innandyra gerir hann að sönnum sigurvegara í okkar augum.“
Mark Simpson, framkvæmdastjóri markaðsdeildar Ford í Bretlandi, sagði: „Nýjasti Ford Fiesta er á góðri leið með að verða ný táknmynd Ford. Breskur almenningur elskar stíl Fiesta en, eins og kemur fram hjá Diesel Car tímaritinu, fellur það fyrir akstursupplifuninni um leið og það er komið undir stýri.“
Ford tilkynnti í vor að ESP stöðugleikastýrikerfi yrði staðalbúnaður í Ford Fiesta. Bluetooth og USB tenging eru staðalbúnaður í Titanium módelinu, dísilvélarnar eru aflmeiri og losun koldíoxíðs er minni.