Fyrstu myndirnar af nýja Mondeo hafa verið birtar og þær sýna, líkt og eftir endurbætur á Ford S-MAX og Galaxy, að breytingarnar eru í takti við hönnunarstefnu Ford ’Kinetic Design’.
Mondeo er þekktur fyrir að vera glæsilegur alhliða bíll sem er þægilegur, ljúfur undir stýri og öruggur – allt atriði sem hinn nýi Ford Mondeo byggir á.
„Ford Mondeo er þegar sterkt módel í flotanum okkar. Með nýrri hönnun styrkist staða Ford Mondeo sem flaggskip okkar í Evrópu,“ segir John Fleming, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Ford í Evrópu.
„Þetta er flottasti, öruggasti og vistvænasti Mondeo bíllinn hingað til og hann fullkomnar endurbætur okkar í þessum stærðarflokki.“ Fyrir utan endurbætur að innan og aukin gæði býðst nú ýmiskonar nýr aukabúnaður í Ford Mondeo, svo sem LED lýsing innan í bílnum og nýr GPS staðsetningarbúnaður.
Nýr Mondeo býður líka upp á öflugustu 2.0 lítra Ford EcoBoost vélina til þessa. Hún er 240 hestöfl og býðst nú ásamt 203 hestafla vélinni sem kom á markað fyrr á árinu fyrir Mondeo, S-MAX og Galaxy.
Nýja 240 hestafla EcoBoost túrbó-bensínvélin losar 179 g/km af koldíoxíði í blönduðum akstri, eins og 203 hestafla vélin. Ford EcoBoost tæknin eyðir fimmtungi minna af eldsneyti og losar fimmtungi minna af koldíoxíði en hefðbundnar mun stærri bensínvélar með sama afl.
Önnur nýjung er 2.2 lítra Ford Duratorq TDCi vélin, þar sem aflið hefur verið aukið um 12 prósent í 200 hestöfl, sem gerir hana að öflugustu Ford Duratorq dísilvélinni. 2.0 lítra TDCi Mondeo kom á markað fyrr á árinu og býðst 115, 140 eða 163 hestafla. Hún losar aðeins 139 g/km af koldíoxíði í blönduðum akstri.
Nýi Ford Mondeo býður einnig upp á ýmsa Ford ECOnetic tækni svo sem Smart Regenerative Charging, þar sem hreyfiorka er nýtt til hleðslu, Ford Eco Mode, sem er tölvuforrit sem aðstoðar bílstjórann við að aka á sem vistvænastan hátt, og Active Grille Shutter system.
Það síðastnefnda, sem býðst nú í fyrsta skipti í Ford, er kerfi sem stjórnar loftstreyminu í vélarrýminu og minnkar þannig loftmótstöðu og stjórnar hitastiginu. Þetta bætir eldsneytisnýtingu og upphitun vélarinnar, og kemur sér sérlega vel í kaldara loftslagi.
Nýjasta 6 gíra PowerShift sjálfskiptingin með tvöfaldri kúplingu er staðalbúnaður með EcoBoost bensínvélum Ford og býðst einnig sem aukabúnaður með 140 og 163 hestafla útgáfum af 2.0 lítra Duratorq TDCi dísilvélunum.
Með nýja Ford Mondeo býðst líka ýmis tækni sem auðveldar bílstjóranum lífið og sést nú í fyrsta skipti í Ford, til að mynda veglínuskynjari, ökumannsviðvörun (Driver Alert), og sjálfvirkur hái geisli.
Þá er bíllinn útbúinn tækni sem þegar býðst í Ford S-MAX og Ford Galaxy, eins og blindrablettsviðvörun (BLIS), hraðatakmörkun (Speed Limiter), rafrænni barnalæsingu og baksýnismyndavél.
Nýr Ford Mondeo kemur á Evrópumarkað í haust.
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan