Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

09. september 2010
Ford | mán. 19. júl. 2010

2011 árgerð Ford Shelby Mustang GT500 rokselst í forsölu

Hér má sjá blæjuútgáfuna af 2011 árgerðinni af Shelby GT500

Þegar hafa verið pantaðir 3.300 af þeim 5.500 Ford Shelby Mustang GT500 sem framleiddir verða af 2011 árgerðinni. Ford ákvað að varðveita sérstöðu bílsins með því að framleiða hann í takmörkuðu upplagi og eftirspurnin hefur þegar farið fram úr björtustu vonum framleiðandans.

Bíllinn er vinsæll meðal bílaáhugamanna og er það ekki síst krafturinn í nýjustu útgáfunni sem fær þá til að bíða í ofvæni. GT500 útgáfan er búin 5.4 lítra, átta strokka vél með 550 hestöflum. Geri aðrir betur!

Að sjálfsögðu er hægt að panta bílinn með alls kyns aukabúnaði, til að mynda glerþaki, sem hefur notið mikilla vinsælda á þessari útgáfu bílsins. Þá hafa kaupendur fallið fyrir nýju rafkerfi með raddstýrðu GPS staðsetningarkerfi og stafrænu útvarpi.


Tæp 70% þeirra sem þegar hafa pantað bílinn hafa tekið svokallaðan SVT aukapakka, en SVT stendur fyrir Special Vehicle Team. Með þessum aukapakka fæst búnaður sem gerir bílinn nánast kláran á kappakstursbrautina. Með SVT pakkanum fylgja meðal annars sérhönnuð Goodyear dekk, hærri gírhlutföll, stífari fjaðrir, léttari hjól og ýmsar útlitsbreytingar.

Hér má sjá fréttamyndband FastLane þar sem fjallað er um bílinn.

Í þessu myndbandi má líka sjá Ford Shelby Mustang GT500 í “aksjón.”


Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli