Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

06. september 2010
Ford | mán. 26. júl. 2010

Stórglæsilegur Ford Explorer afhjúpaður á Facebook

Nýr Ford Explorer er svipmikill
Kynning nýja Ford Explorer á Facebook hefur tekist mjög vel og voru rúmlega 30.000 manns búnir að skrá sig þar fyrir frumsýninguna. Það er ekki að ástæðulausu sem Ford bindur miklar vonir við að hinn nýi Ford Explorer sé vel heppnaður. Á 20 ára tímabili hafa verið seldar sex milljónir Ford Explorer bíla en Ford Explorer hefur iðulega verið næst mest seldi bíll Ford, á eftir F150 pallbílnum.

Á ári hverju seldi Ford um 400 þúsund Ford Explorer bíla fram að efnahagshruninu í Bandaríkjunum en eftir hrunið var þessi tala hinsvegar komin niður í 52 þúsund bíla. Þrátt fyrir þetta telur Ford að mikil tækifæri séu á markaðnum, aðeins þurfi að endurhanna bílinn fyrir 21. öldina, sem er reyndar ekkert smá verkefni því þá þarf að tryggja sparneytni, aksturseiginleika og notagildi sem undirstriki forystu Ford Explorer á markaðnum.

Ný nálgun

Ekki ber á öðru en þetta hafi Ford tekist með afbrigðum vel. Nýi Ford Explorer jeppinn er mun sparneytnari en eldri kynslóðin, býr yfir betri aksturseiginleikum á vegum sem vegleysum en jafnframt ræður jeppinn yfir fullkomnu fjórhjóladrifskerfi, öryggisbúnaði í hæsta gæðaflokki og miklum lúxus og tæknibúnaði. Það má því segja að hinn nýi Ford Explorer geri einfaldlega allt vel og sé því holdgervingur þess sem kröfuharðar nútíma fjölskyldur vilja.

Stjórnendur Ford bera Ford Explorer gjarnan saman við aðra jeppa í sama stærðarflokki. Sá samanburður er afar hagstæður þar sem Ford Explorer hefur meiri dráttargetu og minni eldsneytisnotkun en keppinautarnir frá t.d. Honda og Toyota. Þessu má þakka þeirri staðreynd að nýi jeppinn er ekki lengur byggður á sjálfstæða grind og V8 vélin hefur vikið fyrir tveimur sparneytnari vélum, V6 vél sem mun ná um 20% minni eldsneytisnotkun en V6 vél síðustu kynslóðar en einnig 2,0 lítra EcoBoost fjögurra strokka vél sem mun ná um 30% minni eldsneytisnotkun en V6 vél síðustu kynslóðar.

Verulega aukin hagkvæmni

Ford þurfti að endurhugsa alla hönnun Ford Explorer til að ná markmiðum sínum um aukna hagkvæmni fyrir jeppa 21. aldarinnar. Ford Explorer býr því meðal annars yfir tveimur sjálfstæðum og breytilegum tímagjöfum fyrir kambásinn, sex gíra sjálfskiptingu, rafmagnsstýri sem dregur úr orkutapi, háþróuðu fjórhjóladrifi, sérstakri loftkælingu sem sparar orku, sérhönnuðum lágviðnáms dekkjum og minnstu loftmótsstöðunni í sínum flokki eða vindstuðull 0,35. Þá er nýr Ford Explorer um 45 kílóum léttari en forverinn þrátt fyrir að vera sjö manna og mun betur útbúinn. Þessu má m.a. þakka áli og hástyrktar stáli sem hefur verið notað til að létta bílinn.

Ford hefur farið fremur nýstárlega leið fyrir þennan stóra bíl til að ná aukinni sparneytni. 2,0 lítra, 4 strokka, EcoBoost vélin mun falla í hagstæða tollaflokka víða um heim, meðal annars á Íslandi, en samt sem áður skila miklu afli og góðu togi í bland við framúrskarandi sparneytni.

Með EcoBoost vélinni fást 237 hestöfl og 338 Nm í togi þrátt fyrir að aðeins sé um að ræða 4 strokka 2,0 lítra vél.Togið næst ennfremur á afar hagstæðu snúningssviði, frá 1700 snúningum og að 4000 snúningum og því ætti akstur bílsins að vera áreynslulaus við flest allar aðstæður.

Nýja V6 vélin er 3,5 lítra. Hún notar 20% minna eldsneyti en eldri V8 vélin en skilar þó nærri því jafn mörgum hestöflum og 345 Nm í togi. Það verður hægt að fá háþróað fjórhjóladrifskerfi með þeirri vél þar sem ökumanni jeppans nægir að velja eina af fimm fyrirfram forrituðum stillingum á fjórhjóladrifskerfinu, sand, snjó, leðju eða staðal stillinguna en að auki er brekkustýring innbyggð í kerfið.

Vönduð efni og smíði

Augljóst er á smíði bílsins hve Ford hefur sett markið hátt. Bil á milli hurða og bretta eru til að mynda með því minnsta sem gerist í þessum flokki bíla og meira í ætt við það sem tíðkast á þýskum lúxusbílum. Bæði innanrými bílsins og útlit hans státa af nýstárlegum efnum og nútímalegri hönnun. Notuð eru mjúk og áferðarfalleg efni í innréttingarnar og jeppinn er sérlega hljóðlátur og skilar þannig heildstæðri upplifun á gæðum bílsins.

Þá verður Ford Explorer hlaðinn öryggisbúnaði, meðal annars, beygjustýringu sem beitir hemlum til að halda bílnum stöðugum í kröppum beygjum, háþróuðum loftpúðum og einstakri öryggistækni eins og öryggisbelti með innbyggðum loftpúðum, veltivörn og sérstöku viðvörunarkerfi sem varar við bílum á hinum svokallaða blinda blett. Þetta er þó aðeins hluti öryggisbúnaðarins.

Úrval búnaðar fáanlegt

Fyrir jeppa hins nýja heims verður einnig fáanlegt mikið úrval af tæknibúnaði og má þar nefna einna helst 4,2 tommu LCD skjá í mælaborði, fjölmiðlunarkerfi, fjögur 12V tengi, sjálfvirk aðalljós, fjarlægðarskynjarar, umhverfislýsing, bakkmyndavél með aðdrætti, fjarræsibúnaður og jafnvel rafdrifinn búnaður til að fella niður eða reisa við þriðju sætaröðina er fáanlegur sem aukabúnaður.

Óvíst er enn sem komið er hvenær nýr Ford Explorer mun koma til Íslands en víst er að bíllinn mun höfða til þeirra sem vilja fá alla þá kosti sem sjö manna jeppi býður upp á en jafnframt tryggja sparneytni á við mun minni og léttari bíl. Þá er búist við því að verð Ford Explorer verði samkeppnishæft, sérstaklega á 2,0 lítra bílnum þar sem hann fellur í lægri vörugjaldsflokkinn á Íslandi, 30% á meðan 3,5 lítra bíllinn fer í 45% vörugjaldsflokk.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli