Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012
Brimborg | fös. 6. ágú. 2010

Autoblog segir nýja Ford Fiesta almenningsvæðingu gæða og gleði

Ford Fiesta er litríkur og einstakur að mati Autoblog.
Autoblog er orðin ein stærsta bílavefsíða í heimi og eru reynsluakstursgreinar síðunnar ávallt áhugaverðar þó reynsluakstursgreinarnar séu reyndar heldur fátíðar. Autoblog reynir að birta ítarlegar greinar sem hafa nokkuð öðruvísi nálgun en venjulegt er. Reynsluakstursgreinin um hinn nýja Ford Fiesta er í þeim dúr og er farið yfir þróunarsögu lúxus og gæða í bílum og það sérstaklega nefnt að Ford Fiesta sé skýrasta dæmið um hvernig lúxusútbúnaður sem fyrst sé þróaður í dýrustu bílunum rati niður framleiðslulínuna.

Vandi flestra bílaframleiðenda er hinsvegar ekki sá að troða fullt af búnaði í smábíla, heldur sé vandinn sá að fá þann aukabúnað sem fáanlegur er til að bæta við heildargæði bílsins. Þetta er nokkuð sem Ford Fiesta hefur tekist mjög vel að mati Autoblog og því er bíllinn talinn afar góð kaup þó hann sé örlítið dýrari heldur en hinn hefðbundni smábíll sem Bandaríkjamönnum stendur til boða.

Hvað líkaði Autoblog?


Það var æði margt við hinn nýja Ford Fiesta sem Autoblog líkaði. Það kemur reyndar ekki sérlega á óvart því bílnum hefur verið tekið frábærlega í Bandaríkjunum enda er um að ræða fyrsta lúxussmábílinn sem þar er í boði sem sameinar hinar nýju kröfur hins bandaríska borgara um aukna sparneytni, pláss, fimm hurðar, góðan útbúnað og öryggisbúnað í hæsta flokki.

Autoblog nefnir sérstaklega litaúrvalið fyrir Ford Fiesta en hægt er að panta bílinn í mörgum afar líflegum og frumlegum litum. Slíkir litir koma vel út á smábílum, sérstaklega þeim sem hafa álíka litrík einkenni og sportlega eiginleika eins og Ford Fiesta. Autoblog hælir sérstaklega litnum á prófunarbílnum sem er sérpöntun og heitir Yellow Blaze og er þriggja laga djúplakk sem gefur ótrúlega dýpt og skerpu.

Mikil áhersla hefur verið lögð á hönnun bílsins og þó notagildið sé í fyrirrúmi hefur það ekki verið látið koma niður á útlitslegri hönnun Ford Fiesta eins og sést bæði að utanverðu og að innanverðu. Þessi heildar svipur gæða hefur mikið að segja um þá upplifun gæða sem ökumaður og farþegar bílsins verða fyrir.

Þá eru plastefnin sem notuð eru í innréttingarnar mjúk og gæðaleg viðkomu nefnir Autoblog en það sem raunverulega skilur bílinn að frá keppinautunum eru vel útfærð smáatriði. T.d. upplýstir bollahaldarar þar sem hægt er að skipta um lit á lýsingunni, leðurklætt stýrið þykir einnig afbragðs gott en eins og vanalega eru það aksturseiginleikarnir sem gera Ford Fiesta að afar sérstökum bíl.

Frábærir aksturseiginleikar

Ford Fiesta býr yfir sérstaklega sterkbyggðri yfirbyggingu og undirvagni sem er einmitt grunnur þeirra frábæru aksturseiginleika sem Ford Fiesta er þekktur fyrir. Autoblog segir að styrkleiki bílsins þýði að hann gæti ráðið við tvisvar sinnum meira afl en prófunarbíllinn ræður yfir en hann er 120 hestöfl. Það vill svo til að Ford veit þetta vel enda er Ford Fiesta nú þegar komin á malarvegi og malbik í rallútgáfu t.d. á vegum hins þekkta rallökumanns Ken Block.

Þá segir Autoblog að Ford Fiesta sé einstaklega vel hljóðeinangraður og minnir hljóðeinangrun bílsins, veg- og vindhljóð á bíla í miklu hærri verðflokkum.

Eldsneytisnotkun bílsins í reynsluakstri Autoblog, sem var nokkuð líflegur, var 7,35 lítrar á hundraðið. Þetta var niðurstaðan í því sem þeir kölluðu „spirited“ eða líflegur blandaður akstur. Það þýðir í raun að ekki var um neinn sparakstur að ræða. Með sex gíra PowerShift tvíkúplings-skiptingu Ford er hinsvegar hægt að ná bílnum nær fimm lítrum á hundraðið í langkeyrslu með 120 hestafla vélinni. Á næsta ári er reiknað með að EcoBoost vélar gætu mögulega fengist en með þeim fæst bæði meira afl og minni eldsneytisnotkun.

Heildarniðurstaða Autoblog var sú að Ford hefði tekist með Ford Fiesta að bjóða frábæran smábíl sem hefði evrópska aksturseiginleika, vandaðar innréttingar, leiðandi tæknibúnað og hrífandi hönnun fyrir aðeins smávægilegan auka kostnað. Það telur Autoblog vera raunverulega almenningsvæðingu gæða og gleði.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli