Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012
Ford | þri. 10. ágú. 2010

Nýi Ford Explorer er að mestu endurvinnanlegur

Nýr Ford Explorer er að mestu úr endurunnum og endurnýtanlegum efnum
Nýr Ford Explorer er ekki aðeins breyttur og endurbættur, sem sést meðal annars í verulega bættri eldsneytisnýtingu, heldur er hann orðinn mun vistvænni þar sem stór hluti hans er úr endurunnum og endurvinnanlegum efnum.

Stálið sem notað er í yfirbygginguna er að hluta til afgangsstál úr framleiðslu á Ford F-150 pallbílnum, lífræn kvoða er notuð til fyllingar í sætin og víðar og innréttingar eru að hluta endurunnar.

Nýi Ford Explorer hefur farið í gegnum miklar breytingar og var leitað leiða til að gera bílinn sem vistvænastan. Til að mynda eru hljóðdempandi skilrúm milli yfirbyggingarinnar og innra byrðis fyllt með stáli sem fellur til við framleiðslu Ford F-150 þegar klippt er fyrir hurðagötunum.

Með þessu hefur tekist að draga úr notkun á nýju stáli um tæplega 120 tonn á ári, sem er jafn mikið og bíll í millistærð losaði ef honum væri ekið fjórtán sinnum í kringum jörðina.

Innviði nýja Explorer eru líka að miklu leyti úr endurunnum efnum til að minnka umhverfisáhrif hans. Fjórðungur áklæðis, bólstrunar og teppa eru úr endurunnum trefjum, sem gerir að verkum að orkunotkun er 20% minni, 17% minna rusl fellur til og losun koldíoxíðs minnkar um 14% við framleiðsluna.

Lífræn kvoða er notuð sem fyllingarefni í höfuðpúða og sætisbök og það er stefna Ford að nota hana í alla framleiðslu sína í árslok.

Notkun kvoðunnar, sem er svokölluð pólýúretan sojakvoða, hefur gert það að verkum að notkun Ford á hráolíu hefur minnkað um 10,500 tunnur árlega og þar að auki orðið til þess að losun Ford á koldíoxíði hefur minnkað um tæp fimm tonn sem jafngildir árlegri losun tæplega eitt þúsund amerískra heimila.

Eldsneytisnotkun nýja Ford Explorer á ekki síður þátt í að skipa honum í fremstu röð vistvænna jeppa. Nýjar vistvænar sex strokka EcoBoost vélar tryggja þar forystu Explorer, en þær eyða 30% minna eldsneyti en fyrri útgáfur V6 vélanna án þess að gefa eftir í afköstum.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli