05. febrúar 2012
Ford
|
fös. 27. ágú. 2010
Nýjum hæðum náð í næsta Ford Focus
Næsta kynslóð Ford Focus kemur á markað snemma á næsta ári.
Næsta kynslóð Ford Focus er núna í síðasta ferli sínu áður en bíllinn fer í framleiðslu. Búið er að aka prófunarbílunum af næstu kynslóð Ford Focus um allan heim í leit að erfiðustu aðstæðum. Þannig hefur Ford Focus mátt þola frosthörkur, seltu, bakandi hita, sól og þurrk og nú síðast hefur bíllinn verið í
Ölpunum þar sem undirvagn bílsins, vél, drifbúnaður og hemlar eru prófuð til hins ýtrasta.
Ford leggur gríðarlega mikla áherslu á prófunarferli bíla sinna og sennilega hefur sjaldan verið lögð eins mikil áhersla á ferlið eins og núna þar sem um er að ræða fyrsta eiginlega alheimsbíl Ford. Hinn nýi Ford Focus sem kemur á markað á næsta ári verður nefnilega seldur um allan heim í sömu útgáfunni þó vissulega verði mismunandi áherslur í búnaði á milli markaðssvæða.
Ford hefur lagt stórar fjárhæðir í þróun bílsins enda hyggst fyrirtækið ná nýjum hæðum í gæðum og virði. Innréttingar og tæknibúnaður verða á pari við miklu dýrari bíla og Ford mun halda í annálaða aksturseiginleika Ford Focus bílsins. Algjörlega ný hönnun mun prýða bílinn sem mun fanga betur hina kviku eiginleika hans.
Hæstu hæðir í Ölpunum
Tæknilið Ford hefur undanfarið varið mörgum dögum í Ölpunum þar sem bílarnir eru prófaðir eins og áður segir. Aðstæður þar eru mörgum bílum erfiðar. Til dæmis er bílunum ekið í 3798 metra hæð en í slíkri hæð reynir mun meira á bílvélarnar og afkastagetu þeirra en við sjávarmál. Það má því segja að Ford hafi bókstaflega farið með Ford Focus í hæstu hæðir enda er bílnum ætlað að sækja á brattann.
Í Ölpunum þurfa bílarnir og ökumenn þeirra að spreyta sig á 12% halla alla leið frá láglendi upp í 2400 metra hæð. Allt þetta þarf hinn nýi Ford Focus að gera með fullhlaðinn bíl, ökumann og farþega, þrjá vatnsdunka í aftursætunum sem fulltrúa farþeganna þar og jafnvel þarf bíllinn að brölta leiðina aftur og aftur með kerru í ofanálag.
Við þessar erfiðu kringumstæður er reynt á bílinn eins og hægt er. 1, 2 og 3 gír eru notaðir til að hita vélina sem mest. Þess er gætt að hún nái ekki að kólna niður þegar stoppað er með því að vefja einangrun utan um framhluta bílsins. Allt er þetta gert til að reyna að fá vélina til að ofhitna. En það gengur að sjálfsögðu ekki. Nýi Ford Focus bíllinn er fótviss eins og geit og étur upp kílómetrana með bestu lyst.
Reynsluakstursmennirnir aka bílnum á 30 km/klst til að draga úr loftkælingu á vélinni og ítrekað er bíllinn stöðvaður og tekið af stað aftur með tveggja öxla kerru í eftirdragi svo reyna megi sem mest á kúplingu bílsins.
Svona eru prófunardagarnir hjá Ford Focus á meðan hann fer í gegnum síðustu prófanir áður en hann fer í framleiðslu. Þetta er ein af leiðum Ford til að tryggja að nýi Ford Focus bíllinn verði sannkallaður alheimsbíll, sem muni standa undir ýtrustu kröfum.