Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012
Ford | þri. 31. ágú. 2010

Nýr Ford Fiesta hlýtur verðlaun fyrir öryggi

Nýr ford fiesta er öruggasti kosturinn í flokki smábíla
Nýr Ford Fiesta fékk toppeinkunn í árekstraprófunum í öllum flokkum hjá IIHS, og fyrir að vera með stöðugleikastýringu sem staðalbúnað. Enginn annar smábíll hefur hlotið toppeinkunn í öllum fjórum flokkum prófana stofnunarinnar.

Ford Fiesta er áttunda Ford módelið til að hljóta bestu einkunn hjá IIHS. Einkunnin gildir um bíla framleidda eftir júlí 2010, eftir að Ford styrkti opnunarbúnaðinn á dyrunum þannig að þær opnast síður við hliðarárekstur.

Í þágu bílkaupenda

Árekstraprófanir IIHS skiptast nú í fernt og reyna á öryggi bílstjóra og farþega við framanákeyrslu, aftanákeyrslu, hliðarárekstur og veltu. Markmiðið er, líkt og hjá Euro NCAP, evrópsku systurstofnun IIHS, að veita bílakaupendum samanburðarhæfar upplýsingar um öryggisbúnað ólíkra bifreiða.

IIHS byggir mat sitt þó ekki á stjörnugjöf, eins og Euro NCAP gerir, heldur fá þeir bílar sem skora nægilega hátt í öllum prófununum sæmdartitilinn “öruggasti bíll” þess árs sem árekstraprófin fóru fram. Þá eru prófanir IIHS bundnar við umferðaröryggi farþega og bílstjóra, á meðan prófanir Euro NCAP ná einnig til öryggis barna og gangandi vegfarenda.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli