Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | mán. 20. sep. 2010

Nýjungar frá Ford í París

Ford Focus ST sem kemur á markað árið 2012
Nýr Ford Focus er væntanlegur á Evrópumarkað eftir áramót en hann verður fyrsti bíll Ford sem verður framleiddur eins fyrir öll markaðssvæði í heiminum. Á bílasýningunni í París verða heilar þrjár útgáfur til sýnis: sportleg 5 dyra útgáfa, fáguð 4 dyra útgáfa og skutbíll.

Ford heitir því að nýr Ford Focus setji ný viðmið hvað við kemur tæknibúnaði í þessum flokki bíla.

Vöðvabúnt á hjólum

Fyrir þá sem horfa til sportlegra aksturseiginleika, verður líka möguleiki á að skoða sérútgáfu af Ford Focus ST, sem búist er við að fari í framleiðslu á næsta ári og komi á markað árið 2012.

Þar er á ferð grófur götubíll, með krafta í kögglum. 2.0 lítra EcoBoost bensínvélin er orðin 250 hestöfl og það er öruggt að bíllinn á eftir að vekja verðskuldaða athygli í París.

Ford mun einnig bjóða upp á skutbíls- og 5 dyra útgáfu af nýjum Ford Mondeo í París, en hann var fyrst kynntur á bílasýningunni í Moskvu fyrr á árinu.

Ennfremur verða Titanium lúxusútgáfur af nýja Ford C-MAX og Grand C-MAX til að gleðja gesti Ford á bílasýningunni.

Nýr Ford Mondeo ECOnetic og Ford Ka með Auto-start-stop tækni Ford verða ennfremur til vitnis um að Ford leggur mikla áherslu á þróun á sparneytnum bílum með sífellt minnkandi útblæstri af koldíoxíði í allri Ford línunni.

Ford er skrefi á undan áætlun sinni frá árinu 2006, en samkvæmt henni á að draga úr útblæstri allra nýrra Ford bifreiða um 30% fyrir árið 2020.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli