Söngstjarnan og fagurkerinn Daníel Ágúst Haraldsson prufukeyrði nýlega Ford Escape Limited með blaðamanni Blaðsins. Daníel, sem alla jafna ekur um á rosknum Saab, fannst mikið til Ford Escape koma.
„Rosalega eru fín leðursæti í þessum bíl. Mig hefur alltaf langað í bíl með svona leðursætum. Heyrðu, hann er meira að segja með leðurstýri líka! Þetta þykir mér flott,“ segir Daníel í Blaðinu og heldur áfram að velta hinum ágæta jeppling fyrir sér: „Ætli ég myndi ekki gera meira af því að rúnta hingað og þangað ef ég ætti svona fínan jeppa? Flýja borgina, flóttinn mikli, „Escape“. Mér þykir samt verst að það er enginn snjór í þessum reynsluakstri. Þá hefðum við virkilega getað reynt hann,“ segir Daníel meðal annars.
Og Daníel Ágúst heldur áfram: „Hann tekur vel í þessi, kemur jafnvel á óvart miðað við umfang jeppans. Það er spurning hvort þessi telst jepplingur eða jafnvel fullmótaður jeppi. Hann er rosalega stór, allavega að innan. Eitt sem ég tek eftir er hversu einföld og auðskiljanleg mælaborðsstjórntækin í honum eru. Maður fær strax tilfinningu fyrir öllu og þarf ekki að sækja nein námskeið til að stýra honum,“ segir Daníel Ágúst Haraldsson í skemmtilegu spjalli við Hauk, blaðamann á Blaðinu 21. nóvember.
Smelltu á Ford Escape. og skoðaðu vel búinn og fallegan Ford Escape. Komdu í Brimborg og prófaðu.
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan