Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | fim. 13. jan. 2011

Alnýr Ford Explorer segir GO - DO með Jónsa

Nýr Ford Explorer er kynntur með Go Do, lagi Jónsa.
Nýr Ford Explorer er fráhvarf frá fyrri kynslóð bílsins og að vissu leyti má segja að um viðbragð Ford sé að ræða við nýjum tímum í hagkerfi heimsins. Krafa meðvitaðra kaupenda um meiri eldsneytissparnað, minni útblástur og aukna tæknivæðingu er orðin mjög hávær. Svarið við þeirri kröfu gæti einmitt verið Ford Explorer, bíllinn sem gerir eiganda sínum kleift að gera meira.

Lag Jónsa er sem mikill innblástur í líf athafnasamra. Go Do, sem mætti þýða yfir á íslensku sem Farðu - gerðu, er einmitt það sem Ford Explorer hentar svo vel í. Það er því mjög við hæfi að Ford noti lagið hans Jónsa til að kynna bílinn í einu af kynningarmyndböndunum um bílinn.

Nýr Ford Explorer býr yfir mjög háþróuðu drifkerfi þar sem hægt er að velja stillingar fyrir mismunandi aðstæður með einföldum hnappi. Bíllinn hefur ennfremur sannað getu sína t.d. í snjó en býr, þrátt fyrir góða torfærugetu, yfir frábærum aksturseiginleikum á malbiki sem þakka má því að hann er ekki lengur byggður á grind.

Setur ný viðmið í tæknibúnaði

Ný hugsun hjá Ford hvað varðar Ford Explorer þýðir að tækifæri hefur gefist til að setja ný viðmið. Ofarlega á forgangslista nútímafjölskyldunnar er innanrými og þar hefur Ford aldeilis tekið til hendinni. Innréttingar bílsins eru framúrskarandi vandaðar og gefa til kynna mikil gæði. Útbúnaður bílsins er að sama skapi vandaður og viðamikill og setur hann reyndar líka ný viðmið. Mælaborð bílsins er glæsilegt og þar má stýra helstu aðgerðum í bílnum. Eitt aðal tromp bílsins er þó MyFord Touch kerfið sem með SYNC kerfi Ford býður upp á frábæra miðlunarmöguleika á músík og myndum.

Með Go Do fæst einfaldlega ágætur samhljómur með Ford Explorer.

FORD - BETTER MPG from Mutt Industries on Vimeo.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli