Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | mið. 20. apr. 2011

Fyrsta ferðin á nýjum Ford Focus

Glænýr Ford Focus dekrar við ökumann og farþega.
Ford Mustang sýning helgarinnar var geysilega vel sótt og fengu gestir sýningarinnar einnig að berja augum einn merkilegasta millistærðar bílinn í dag því glænýr Ford Focus var afhjúpaður sem leynigestur.

Nýr Ford Focus er fyrsti alvöru alheimsbíll Ford. Bíllinn er byggður á einum og sama grunninum fyrir alla markaði og sambærilegir útbúnaðarpakkar verða fyrir bílinn hvar sem er í heiminum. Þetta gerir Ford kleift að bjóða miklu meira fyrir minna.

Það sést líka því Ford Focus bílinn sem Brimborg er nú með til sýnis er gjörsamlega hlaðinn af búnaði. Bíllinn er ekki einungis stórglæsilegur að sjá að utan, kraftalegar línurnar bera með sér kvika hönnunina, heldur er bíllinn með innréttingar sem eru sambærilegar við miklu dýrari bíla.

Ford-dekrar ökumanninn

Sérstaklega mikið hefur verið lagt í innanrými bílsins. Hann er afar þéttur, hljóðlátur og þýður og innréttingin undirstrikar þá eiginleika mjög vel. Mjúk ofnæmisprófuð efni eru notuð í innréttingarnar, ál, leður og mælarnir eru svo glæsilegir að þeir minna helst á skartgripi. Í innanrými bílsins er lýsing sem skapar sérstaka stemmningu enda skiptir hún litum.

Þá er bíllinn fáanlegur með breiðu úrvali aukabúnaðar og leynigesturinn sjálfur var í vel útbúinni Titanium útgáfu, með 150 hestafla Ecoboost vél, start/stop tækni, fjarlægðarskynjurum, leiðsögukerfi, raddstýringu og búnaði sem tekur ómakið af bílstjóranum þegar leggja á í þröng stæði... svo eitthvað sé nefnt. Rúsínan í pylsuendanum var svo sælgætisrauður litur bílsins sem gerir einstakri hönnun hans hátt undir höfði.

Aksturseiginleikar Ford Focus hafa þótt vera framúrskarandi um árabil. Svo er enn. Veggrip bílsins er gríðarlegt og hann er nákvæmur, rásfastur og kvikur þegar á þarf að halda. Sportlegir eiginleikar bílsins skína í gegn en verkfræðingunum hefur þó tekist að halda þægindunum í fyrirrúmi. Það mætti segja að ökumenn séu Ford-dekraðir við stýrið á þessum spennandi bíl.

Bíllinn verður frumsýndur í Brimborg þann 7. maí og munu gestir og gangandi geta kynnt sér nokkrar útgáfur af hinum glænýja Ford Focus og þannig kynnast nýju viðmiði gæða í þessum flokki bíla.


Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli