Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | fim. 1. des. 2005

Nýr og breyttur Ford Fiesta á lægra verði

Fiesta er glæsilegur og á góðu verði
Fiesta er glæsilegur og á góðu verði

Ford Fiesta hefur fyrir löngu skapað sér gott orðspor meðal íslenskra bifreiðaeigenda fyrir áreiðanleika, sparneytni, öryggi, akstureiginleika og hagstætt verð. Nú kynnum við nýja kynslóð af Ford Fiesta, skemmtilega fjölskyldubílnum sem aldrei hefur verið jafn glæsilegur og nú. Breytingarnar sem gerðar hafa verið eru einstaklega vel heppnaðar, hvort sem er að innan eða utan. Ford Fiesta er örugglega einn skemmtilegast akstursbíllinn í sínum flokki, komdu og reynsluaktu - þú sannfærist.

Gott verð á Fiesta

Ekki spillir fyrir gleðinni yfir nýjum Ford Fiesta að Brimborg býður nýja bílinn á lægra verði en hingað til - eða frá kr. 1.295.000.-. Fiesta er fáanlegur í nokkrum útfærslum og einnig er úrval véla mjög mikið, allt frá 1,3 lítra 70 hestafla vél til 2,0 lítra 150 hestafla vélar. Auk þess býðst þér Ford Fiesta með afar skemmtilegri 1,4 lítra turbó dísilvél sem er hvort tveggja í senn: spretthörð og einstaklega hagkvæm í rekstri.

Skoðaðu fyrstu myndirnar

Nú þegar eru komnar á vefinn fyrstu myndirnar af nýja bílnum ásamt verði. Kíktu hérna og kynntu þér málið. Komdu svo til okkar á Bíldshöfðann, skoðaðu og reynsluaktu nýjum og glæsilegum Ford Fiesta. Söluráðgjafar Ford taka vel á móti þér.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli