Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

22. febrúar 2012
Ford | fim. 17. nóv. 2011

Reynsluakstur Ford Mustang Boss 302 á Le Mans

Ford Mustang Boss 302

Í bílaþættinum Fimmti gírinn ók umsjónarmaður þáttarins Ferrari um hlíðarnar skammt frá Maranello.Í áranna rás hafa margir bílaframleiðendur skorað Ferrari á hólm, bílinn sem hefur haft goðsagnakenndan blæ yfir sér frá því hann kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1947. Við eitt slíkt tilefni  lék Ford aðalhlutverkið á móti Ferrari í sögufrægum kappakstri á Le Mans kappakstursbrautinni í Frakklandi. Gremja var hjá stjórnendum Ford eftir að Enzo Ferrari, stofnandi Ferrari, hafði á síðustu stundu neitað að skrifa undir samning við Ford í tengslum við samstarf um þróun og smíði á nýjum bíl.  

Sá kappakstur fór í sögubækurnar sem einn langdregnasti kappakstur í sögu keppninnar. Á þessum árum háðu Ford og Ferrari hatramma baráttu um sigur í kappakstrinum sem spannaði nær allan 6. áratuginn. Ferrari hafði betur á fyrri helmingi áratugarins eða frá 1960-1965 með 250TR gerðinni og Ford hafði vinninginn á síðari hluta hans eða frá 1966-1969 með GT40 bílnum.


Í þessu myndbandi prófar hins vegar Vicky Butler-Henderson nýja Ford Mustang Boss 302 á gamalkunnum slóðum – þar sem Ford og Ferrari háðu hatramma baráttu fyrir u.þ.b. hálfri öld – Le Mans brautinni í Frakklandi til að komast að því hvað leynist undir vélinni á þessu nýja útspili Ford-verksmiðjanna. 

 

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli