„Ford Focus Electric er gott dæmi um þann frábæra árangur sem Ford hefur náð í að draga úr eldsneytisnotkun bílanna sinna,“ sagði Derrick Kuzak aðstoðarforstjóri alþjóðaframleiðsludeildar fyrirtækisins. „Hvort sem fólk vill tvinnbíl, tvinnhleðslubíll eða rafbíl er úrvalið hjá okkur afar fjölbreytilegt og allir eiga því að geta fundið bíl við sitt hæfi sem fellur að lífstíl þeirra og þörfum.“ Þetta er afrakstur 20 ára þróunarvinnu, þarfagreiningar og nýsköpunar verkfræðinga og hönnuða fyrirtækisins.
Útbúnaður
Rafbíllinn er búinn nýjum eiginleikum eins og MyFord Touch sem er snertiskjár með stjórnkerfi sem er sérhannað fyrir rafmagnsbíla ásamt viðbót fyrir snjallsíma og MyFord Mobile sem gerir eigendum kleift að hafa samskipti við ökutækið með fjarstýringu. Hönnun bílsins er stílhrein og fáguð, hann er viðbragðsfljótur og er hámarkshraði hans 135 km/klst.
Ford C-MAX tvinnbíllinn og Ford C-MAX Energi nota næstu kynslóð af afldreifikerfi ásamt litíum rafkerfi. Þetta stuðlar að hámarks eldsneytisnýtingu sem fæst með því að tengja litíumbatteríið og rafmótorinn við öfluga og skilvirka Atkinson bensínvél. Bílarnir hafa verið hannaðir og smíðaðir með það í huga að auka þægindi í akstri auk þess sem þeir eru útbúnir MyFord Touch og MyFord Mobile sem stuðlar að enn meiri skilvirkni, þægindum og ánægju í akstri.
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan