Brimborg frumsýnir á laugardaginn nýjan fjórhjóladrifinn Ford Freestyle. Freestyle er fyrsti bíll Ford í flokki svokallaðra "Crossover" bíla eða það sem Brimborg kýs að kalla "fólksbílajeppa". Bílar sem sameina kosti jeppa og fólksbíls. Fjórhjóladrifið er rafeindastýrt af svokallaðri Haldex gerð með spólvörn. Haldex drifið vakir yfir ástandi vegar og er algerlega sjálfvirkt. Skynjarar meta veggripið, tapi hjól afli, taka hin hjólin við og aðstoða ökumanninn við að halda bílnum á veginum. Staðalbúnaður er öflug 3,0 lítra, 24 ventla vél sem skilar 203 hestöflum og togar 280 Nm. Ný tegund sjálfskiptingar er í bílnum sem er stiglaus sem bætir hröðun og minnkar eldsneytiseyðslu.
Ford Freestyle er rúmgóður bíll og er 7 sæta og má mjög auðveldlega fella öftustu sætin ofan í gólf farangursrýmis sem hægt er þá að fullnýta. Aðeins örfá handtök þarf til að fella sætin ofan í gólfið. Freestyle er fullvaxinn og sterkbyggður fólksbílajeppi sem hlotið hefur hæstu mögulega einkunn í árekstrarprófi NHTSA (National Highway Traffic Safety Administration) í Bandaríkjunum, bæði fyrir högg á framenda og hliðar.
Brimborg frumsýnir Ford Freestyle í Brimborgar salnum við Bíldshöfða 6 á laugardaginn frá kl. 12-17. Kaffi og kleinur fyrir alla og reynsluakstur. Ford Freestyle kostar frá kr. 3.680.000 kominn á götuna.
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan