Á sýningunni verður hægt að fá bílana á nýju lækkuðu listaverði. Auk þess verður hægt að fá Titanium-útgáfur af bílunum á frábæru verði eða með 50% afslætti út janúar en Titanium er flottasta búnaðargerð Ford, með glæsilegri innréttingum, útliti og enn meiri útbúnaði.
Frábært tækifæri til að eignast Titanium útgáfur
Fyrir aðeins 100.000 kr. fæst Ford Fiesta með Titanium pakka ef pantað er í janúar en listaverðið á pakkanum er 200.000. Ford Fiesta er fáanlegur beinskiptur og sjálfskiptur og með bensín- og dísilvélum á lækkuðu verði frá því í fyrra um 130.000. Ford Fiesta fæst því á tilboðsverði frá 2.290.000 og með Titanium útbúnaði frá 2.390.000 og er bíllinn því á sérstaklega góðu verði því það var vel samkeppnishæft fyrir.
Í Ford Fiesta er mikið lagt upp úr öryggi og árangurinn eftir því. Hann hlaut m.a. fimm stjörnur í öryggisprófi Euro NCAP enda hlaðinn öryggisbúnaði. Hann er með fjóra líknarbelgi, ESP stöðugleikastýrikerfi með spólvörn, ABS hemlalæsisvörn sem inniheldur EBD hemlajöfnun og EBA nauðhemlunarkerfi og IPS öryggiskerfi. Ford Fiesta hefur farið sigurför um heiminn og er smábíll sem í raun er mjög stór í sér.
Ford Focus fæst í station útgáfu
Titanium fyrir Ford Focus fæst á 145.000 ef pantað er í janúar í stað 290.000 sem er listaverðið á Titanium pakkanum. Auk þess lækkar listaverðið á Ford Focus um 100.000 og nú fæst Focus á verði frá aðeins 3.490.000 kr. Ford Focus fæst einnig í station útgáfu.
Ford Focus er búinn nýjasta og fullkomnasta tæknibúnaði og fáanlegur með aukabúnaði sem aldrei áður hefur sést í þessum verðflokki bíla. Hingað til hafa einungis lúxusbílar haft þann búnað sem nú er fáanlegur í Ford Focus. Sem dæmi má nefna að Ford Focus getur sjálfur lagt í stæði auk þess sem hann er útbúinn veglínuskynjara sem lætur vita ef þú ert á leið útaf veginum eða á leið yfir á rangan vegarhelming.
Ford Focus er mjög hagkvæmur í rekstri og eyðir aðeins frá 3,7 l/100 km í langkeyrslu og losun koltvísýrings er frá 109 g/km.
Ford Mondeo fæst nú með Titanium búnaði á aðeins 160.000 til viðbótar við Trend verðið en tilboðið gildir einungis út janúar. Heildarverðmæti Titanium pakkans er 320.000. Auk þess sem hægt er Mondeo á lækkuðu verði frá 3.990.000 og er það verðlækkun um 350.000 frá listaverði.
Ford Kuga AWD sportjeppinn fæst loks í Titanium S gerð og hefur sá bíll lækkað verulega í verði frá því fyrir áramót eða um 900 þúsund krónur. Verð á Ford Kuga AWD sportjeppanum í Titanium S gerðinni er frá aðeins kr. 5.090.000 ef keypt er í janúar.
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan