Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

22. febrúar 2012
Ford | fim. 26. jan. 2012

Sjö bílaframleiðendur vinna að stöðlun rafmagnshleðslustöðva fyrir bíla

Ford Focus Electric.

Nokkrir af stærstu bílaframleiðendum heims hafa ákveðið að taka í notkun hleðslutæki sem rafbílar fyrirtækjanna geta nýtt. Bílaframleiðendurnir hafa trú á því að þróunarvinna á hleðslutækinu komi viðskiptavinum, framleiðendum hleðslutækjanna og þeim sem sjá um uppsetningu tækjanna að góðum notum. Stöðlun þeirra mun auðvelda framleiðslu á tækjunum, flýta fyrir uppsetningu þeirra og gera eigendum rafbíla lífið léttara.

Stuðningur Samtaka hleðslutækjaframleiðenda við verkefnið (Combined Charging System) var byggður á úttekt og greiningu á núverandi kerfi, vinnuvistfræði uppsetningaraðila og væntinga viðskiptavina jafnt í Evrópu og Bandaríkjunum. Fyrirhuguð samræming kerfisins beggja vegna Atlantshafsins mun búa til ramma fyrir framtíðarskipan hleðslustöðvanna auk þess samskiptamáta sem notaður verður fyrir samþættingu rafbíla við upplýsinganet sem safnar, dreifir og vinnur úr gögnum um notendur og birgja til að auka skilvirkni kerfisins.
Bílaframleiðendurnir hafa einnig ákveðið að nota HomePlug Green Phy sem samskiptasnið fyrir kerfið. Það mun auðvelda samskipti rafbílanna við 
viðbót fyrir upplýsinganetið.

 

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli