Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | mán. 6. mar. 2006

Nýr Ford Focus ST fær frábæra dóma

Mjúkur, snarpur, nákvæmur segir AutoCar
Mjúkur, snarpur, nákvæmur segir AutoCar

„Það er vélin sem ræður mestu um hvernig maður skynjar þennan bíl. Hún er svo öflug og býr yfir svo sérstökum fimm strokka hljómi að maður næstum tekur ekki eftir því hve mjúk keyrslan er, hversu snörp stýringin er, hversu áreynslulaus hemlunin er og hversu mikið gripið er í kröppum beygjum.“

Dómur AutoCar

Þetta er brot úr umfjöllun breska tímaritsins Autocar, sem nýlega tók nýja Ford Focus ST í prufukeyrslu. Eins og sjá má áttu blaðamenn Autocar varla orð til að lýsa hrifningu sinni yfir þessum öfluga sportbíl, sem fékk einkunnina 4,5 stjörnur af fimm mögulegum. Ford Focus ST var meðal annars tekinn til kostanna á kappakstursbraut. Þar náði hann besta tíma við votar aðstæður; betri en nokkur annar bíll hefur náð við prófanir Autocar. Betri tíma en til dæmis Porsche 911 Carrera S og Aston Martin V8 Vantage.

Kraftmikill sportbíll

Blaðamenn Autocar segja jafnframt að einn helsti kostur Ford Focus ST sé hve vel hann liggi á veginum og næstum ómögulegt sé að missa afturendann á skrið. En um leið og bíllinn er einn sá kröftugasti í flokki smærri sportbíla í heiminum í dag að mati Autocar er hann sérstaklega þægilegur í allri umgengni og hentar líka vel við hefðbundinn akstur. „Ford Focus ST er hvorki meira né minna en sá besti í flokki smærri sportbíla sem fæst í dag. Betri en Golf GTi og þá er mikið sagt,“ segir svo í niðurlagi umfjöllunar Autocar.

 

Lestu umfjöllun AutoCar. Smelltur.

 

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli