Í sérblaði Morgunblaðsins um bíla föstudaginn 4. mars kemur fram að það sé einkar athyglisvert að fylgjast með því hvernig Ford vinni á í vinsældum því þetta heimsfræga vörumerki er það sem af er árinu 2005 í öðru sæti með 9,5% hlutdeild í fólksbílaflokki og 11,3% hlutdeild samanlagt í öllum flokkum nýrra bíla, þ.e. fólksbíla og jeppa, sendibíla, fólksflutningabifreiða og stórra pallbíla.
Frá því Brimborg tók að sér Ford umboðið fyrir 10 árum síðan, nánar tiltekið í janúar 1995, hefur hlutdeild Ford meira en tífaldast hér á landi, farið úr 1% í 11%.
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan