Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | mán. 17. jan. 2005

Ford Focus frumsýndur í um helgina

Jónsi sviptir hulunni af Focus
Jónsi sviptir hulunni af Focus
Brimborg frumsýndi Ford Focus á þrem stöðum á landinu helgina 22-23. janúar, í Reykjavík, á Akureyri og í Reykjanesbæ. Stórstjörnurnar Jónsi, Í svörtum fötum, Margrét Eir og Kalli Bjarni sviftu hulunni af Focus laugardaginn 22. janúar með söng og gleði en fjöldi gesta tók þátt í gleðinni langt fram eftir degi.
Kaffihúsið CaféFocus var opið alla helgina, á öllum þremur sölustöðum Brimborgar þar sem nýbakaðar vöfflur og ilmandi kaffi var á boðstólum. Blöðrutrúðar sýndu blöðrulist og buðu krökkunum uppá faglega andlitsmálun.

Focus er gæðabíll - margar ástæður:

1) Einstök gæði bílsins í heild eins og styrkur yfirbyggingar, aksturseiginleikar og gæði innréttinga.

2) Focus er mun betur búinn en helstu keppinautar og má þar nefna ESP stöðugleikastýrikerfi, loftkælingu, loftpúðagardínur og upphituð sæti.

3) Endursalan er mjög góð en Focus staldrar stutt við á bílasölum. Ástæðurnar eru gæði, aksturseiginleikar og gífurlegar vinsældir bílsins. En það sem hefur skipt sköpum er að Brimborg hefur ekki selt Focus til bílaleiga sem gerir það að verkum að markaðurinn er ekki yfirfullur.

4) Focus í ótrúlegu úrvali gerða þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Má þar nefna 3 dyra, 5 dyra, 4 dyra Sedan og Wagon, beinskipta eða sjálfskipta. Við val á búnaði eru kostirnir fjölmargir og spennandi; Focus Ambiente, Focus Trend, Focus Ghia, Focus Sport og Focus Titanium.

Nýr Ford Focus er á frábæru verði

Miðað við búnað, gæði og útlit er Ford Focus á einstaklega hagstæðu verði. Ford Focus er talinn einn besti bíllinn í sínum stærðarflokki og kostar í vandaðri Focus Trend útgáfu með 1,6 lítra vél aðeins frá kr. 1.896.000.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli