Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | fim. 20. jan. 2005

Ford Focus mun sigra keppinauta sína með rothöggi

Nýr og endurhannaður Focus
Nýr og endurhannaður Focus

Greinilegt er að blaðamaðurinn, Peter Nyholm, heldur vart vatni yfir nýjum Ford Focus sem hann reynsluók nýlega í nágrenni Toscana á Ítalíu.  Peter segir að hinn nýi Ford Focus árgerð 2005 muni ryðjast inn á bílamarkaðinn á næsta ári og sigra keppinauta sína með rothöggi. Spáir blaðamaðurinn því að hinn nýi Ford Focus muni fyrst og fremst beina athygli sinni að VW Golf því útlitsbreytingarnar eigi einkum að höfða til kaupenda sem annars myndu kaupa VW Golf.

Ford tókst hið ómögulega

Í greininni, sem birtist 22. október síðastliðinn, segir Peter Nyholm, blaðamaður Borsen m.a., að verkfræðingum Ford hafi nú tekist hið ómögulega: að hanna bíl sem sameini eðliskosti hins knáa sportbíls og þægindi dýrustu eðalvagna. Að loknum reynsluakstri í nágrenni Toscana er niðurstaðan sú að hinn nýi Ford Focus muni valda verulegum titringi meðal samkeppnisaðilanna því með bílnum setji Ford ný viðmið hvað varðar akstursánægju og þægindi.

Á augljóslega að höfða til eigenda Golf

Hinn nýi Focus hefur mýkri línur en áður og á útlitinu að dæma sé ætlunin augljóslega að höfða til eigenda VW Golf. Framendinn er að sögn Peters mjög líkur Ford Mondeo og mjúkar línur séu aðaleinkenni hins nýja Focus. Peter Nyholm segir að Ford taki sjömílnaskref fram á við þegar litið sé til farþegarýmisins. Hörð efni fyrirrennarans séu á bak og burt og nú séu innviðirnir búnir mjúku og áferðarfallegum efnum sem gefi VW Golf ekkert eftir.

Peugeot ýtt til hliðar

Peter Nyholm segir að þá fyrst komi grundvallareiginleikar Ford í ljós þegar ekið er af hraðbrautunum og inn á fáfarnari sveitavegi. Þá ýti Focus t.d. Peugeot 307 langt til hliðar, sem er söluhár bíll í Danmörku. Peter skrifar að sé hægt er að nota orðið listaverk yfir undirvagn bíla þá eigi það svo sannarlega við um hinn nýja Ford Focus. Bíllinn sé einfaldlega ótrúlega skemmtilegur í akstri, einkum þegar kemur að atriðum eins og stýringu, ánægju í akstri og mýkt því bíllinn sogi bókstaflega burt allar ójöfnur í veginum. Verkfræðingar Ford hafa að sögn Peters Nyholm einfaldlega búið til hið ómögulega - fjölskyldubíl, sem sé eins og sportbíll í akstri og jafnframt þægilegur eins og dýrasti lúxusbíll.

(heimild: Borsen)

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli