Allt frá því að Ford frumsýndi á alþjóðlegu bílasýningunni í Detroit í janúar nýjan og afar spennandi bíl, Ford Edge, hefur bíllinn hlotið verðskuldaða athygli bílaáhugafólks um gervöll Bandaríkin. Bíllinn hefur verið sýndur á nokkrum bílasýningum og hefur almenningur sótt fast að fá frekari upplýsingar um bílinn. Má nefna að meira en ein milljón manna hefur skoðað sérsíðu um bílinn til að afla sér upplýsinganna.
Í vikunni hélt Ford almenna kynningu á Ford Edge á glæsihóteli í San Francisco. Auk almennings sem hafði tækifæri til að koma og virða bílinn fyrir sér var um tvö hundruð manns úr fjölmiðlaheiminum boðið á sýninguna til að fræðast frekar um Ford Edge, hönnun hans, eiginleika og markaðssetningu, og það sem mest er um vert, fulltrúar fjölmiðla fengu í fyrsta sinn tækifæri til að aka bílnum á almennum vegum og við fjölbreytilegar aðstæður til að kynnast bílnum til fulls, meðal annars hinni öflugu 265 hestafla vél, sex stiga sjálfskiptingunni og háþróaðri fjöðruninni.
Einn hinna almennu gesta sem skoðaði Edge og tekinn var tali, sagðist mjög hrifinn af hönnuninni og myndi íhuga gaumgæfilega kaup á þessum bíl næst þegar hann yrði í bílahugleiðingum. Annar gestur, sem rætt var við, grafískur hönnuður og BMW eigandi, var sömuleiðis hrifinn: „Ég er mjög hrifinn af bílnum og því að hann endurspeglar vel þau notagildi sem fjölskyldufólk hefur þörf fyrir, sem er framúrskarandi hönnun og öryggi. Ég myndi gefa þessum bíl hæstu einkunn vegna þessara þátta.“ Perry Milton, frá Kaliforníu sagðist ekki hafa séð áður bíl frá Ford sem svipaði til Ford Edge. „Mér finnst hann flottur, þetta er svona bíll sem er mitt á milli BMW og Mercedes og ég gæti vel hugsað mér að skipta jeppanum mínum út fyrir Ford Edge.“
Aðstandendur sýningarinnar í San Francisco eru mjög ánægðir með fyrirkomulag hennar þar í borg og þær frábæru viðtökur sem Ford Edge hefur hlotið meðal almennings og fjölmiðla, sem hafa verið uppteknir við að kynna sér eiginleika hans til fulls. Fjöldaframleiðsla á Ford Edge hófst í vikunni í bílaverksmiðjunni í Ontario í Kanada og voru frammámenn Ford að sjálfsögðu viðstaddir er fyrsti bíllinn rann af færibandinu.
Skoðaðu Ford Edge
HÉR.Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan