Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | mið. 18. maí 2005

Nýr Ford Focus 4ra dyra

Ford Focus 4ra dyra
Ford Focus 4ra dyra

Við vorum að fá í sýningarsalinn einn glæsilegasta stallbak sem komið hefur á götuna, nýjan fjögurra dyra Ford Focus. Línurnar í bílnum eru í senn sportlegar og glæsilegar. Focus 4ra dyra er fremur stór bíll eða 4.488 mm á lengd, eða einum cm lengri en station bíllinn. Hann er því mjög rúmgóður og með gott farangursrými sem er hvorki meira né minna en 526 lítrar. Aksturseiginleikar eru frábærir enda hafa bílablaðamenn víðsvegar um heiminn hælt þeim í hástert.

Ríkulegur staðalbúnaður

Staðalbúnaður Ford Focus er mjög ríkulegur og má þar nefna stöðugleikastýrikerfi með spólvörn sem er einstaklega góður búnaður og gerir bílinn sérlega rásfastan og öruggan í akstri. Kynnið ykkur þetta frábæra kerfi hjá ráðgjöfum Ford en hingað til hefur það aðeins verið fáanlegt í mun dýrari gerðum bíla. Fleira má telja s.s. ABS hemlakerfi með EBD hemlajöfnun, loftkælingu, 4 öryggispúða og 2 loftpúðagardínur sem falla niður með hliðum að innanverðu til varnar í hliðarárekstri, upphitanleg framsæti, góð hljómtæki með geislaspilara, fjarstýringu í stýri, aðdráttar- og veltistýri, fjölstillanlegt bílstjórasæti og margt fleira.

Fjöldi viðurkenninga

Nýr Ford Focus hefur hlotið fjölda viðurkenninga um heim allan og dúxaði m.a. í nýjasta árekstrarprófi EuroNcap fyrir besta öryggið við árekstur á framenda og hlið. Óhætt er að segja að verðið sé hagstætt því beinskiptur fjögurra dyra Ford Focus Trend með 1,6i lítra vél kostar aðeins kr. 1.940.000, og með sjálfskiptingu aðeins kr. 2.034.000.

Komdu núna

Komdu núna og skoðaðu glæsilegan Ford Focus, ráðgjafar Ford taka vel á móti þér.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli