Ford S-MAX, nýi fjölnotabíllinn frá Ford, hefur verið kjörinn Bíll ársins 2007 í Evrópu en niðurstöður kjörsins um þennan eftirsótta titil voru tilkynntar fyrr í dag. Alls voru átta bílar tilnefndir til þessa titils og var baráttan óvenju hörð í ár. Til marks um það er að aðeins munaði tveimur stigum á Ford S-MAX (235 stig) og Opel Corsa sem varð í öðru sæti (233 stig). Í þriðja sæti kom síðan Citroën C4 Picasso (222 stig).
Verðlaunin Bíll ársins veita samtökin Car of the Year sem eru samtök sjö bílatímarita í Evrópu. Þau eru: Auto (Ítalía), Autocar (Bretland), Autopista (Spánn), Autovisie (Holland), L'Automobile Magazine (Frakkland), Stern (Þýskaland) og Vi Bilägare (Svíþjóð). Dómnefndin samanstendur af 58 bílablaðamönnum frá 22 Evrópulöndum
Ford S-MAX sem hingað til hefur eingöngu verið framleiddur fyrir Evrópumarkað er fyrsti bíllinn frá Ford sem hannaður er samkvæmt nýrri stefnu fyrirtækisins er nefnist „hreyfiaflshönnun“ (kinetic design). Síðan bíllinn kom fyrst á markað í júní á þessu ári hefur hann fengið afar góða dóma og eru verðlaunin nú staðfesting á því. Þess má geta að í öryggisprófunum EuroNCAP-samtakanna í sumar fékk Ford S-MAX hæstu einkunn, fimm stjörnur og 36 stig. Ford hefur á undanförnum árum lagt mikið fé í að þróa tæknilega framúrskarandi og örugga bíla og er S-MAX dæmi um afrakstur þeirrar vinnu.
„Við erum himinlifandi yfir að þessi nýja tegund skuli hafa fengið það frábæra hrós sem verðlaunin eru, sérstaklega í ljósi þess hversu margir verðugir keppinautar voru með. Síðan S-MAX kom á markað fyrr á þessu ári höfum við verið agndofa yfir viðbrögðum þeim sem bíllinn hefur fengið, bæði frá fjölmiðlum og almenningi,“ segir Roelant de Waard, forstjóri Ford Britain, í fréttatilkynningu frá Ford.
Bílar frá Ford Motor Company hafa í gegnum tíðina hlotið titilinn fimm sinnum. Nýjustu dæmin eru Ford Mondeo og Ford Focus, sem báðir eru meðal vinsælustu fólksbíla Evrópu. Von er á fyrstu Ford S-MAX bílunum til landsins í febrúar á næsta ári. Fljótlega eftir áramót verður verð bílsins ljóst.
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan