Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | þri. 24. maí 2005

Ford Focus Muu

Mjólkursamsalan valdi Ford Focus
Mjólkursamsalan valdi Ford Focus

Mjólkursamsamsalan fékk nýlega afhenta fjóra nýja og glæsilega bíla af gerðinni Ford Focus. Um er að ræða þriggja dyra Ford Focus Trend með 1.600 rúmsentimetra vél, sem notaðir verða af starfsfólki sölu- og dreifingarsviðs fyrirtækisins í Reykjavík.

Vel valið hjá Mjólkursamsölunni

Mjólkursamsalan leggur ríka áherslu á að bifreiðar í eigu fyrirtækisins séu vel búnar og öruggar. Má því segja að vel hafi verið valið af forsvarsmönnum fyrirtækisins því Ford Focus dúxaði m.a. í hinu viðurkennda árekstrarprófi sem Euro Ncap framkvæmdi ekki alls fyrir löngu.

Mikill staðalbúnaður

Staðalbúnaður Ford Focus er mikill og má m.a. í því sambandi nefna stöðugleikastýrikerfi með spólvörn, sem gerir allan akstur ákaflega stöðugan og skemmtilegan við hinar margbreytilegu aðstæður. Einnig má nefna fjóra öryggispúða og öryggisgardýnur, sem falla niður með hliðum að innanverðu til varnar í hliðarárekstri.

Brimborg óskar Mjókursamsölunni og notendum hinna nýju Ford Focus Trend til hamingju með nýju bílana.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli