Ford setur nú á markað nýjan og gjörbreyttan Ford Escape og er bæði um að ræða nýjar innréttingar og nýtt útlit. Escape verður mun meira áberandi með djarfara og sterklegra útlit sem ber sterkari fjölskyldusvip með Ford Explorer og Ford Expedition en áður. Hið endurhannaða innlit mun leggja línurnar fyrir sportjeppa á næstu árum.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Ford en Ford Escape er mest seldi sportjeppi Bandaríkjanna. “2008 árgerðin af Escape býður upp á getu og stíl sportjeppans ásamt kostum þeim er fylgja “Crossover” bílum. Við byggjum áfram á þeirri formúlu sem hefur gert Escape að mest selda sportjeppa N-Ameríku síðastliðin sex ár,” segir Cisco Godina, framkvæmdastjóri hjá Ford, í fréttatilkynningunni.
Ein helsta breytingin á útliti bílsins er sú að brotið fyrir neðan hliðarrúður bílsins hefur verið fært ofar með það í huga að veita bílnum sterkara og nútímalegra útlit. Ennfremur hefur húddið verið hækkað og í kjölfarið hefur útlit framljósa og grills breyst.
En það er ekki einungis útlit bílsins sem vekur athygli því að innan hefur hann gengið í gegnum miklar breytingar. Þetta verður fyrsti bíllinn frá Ford þar sem boðið verður upp á skjá í augnlínu ofan á mælaborðinu sem aukabúnað en skjár þessi sýnir hitastig umhverfis bílinn, útvarpsstillingar og stillingu loftkælingar. Þessi einfalda og skilvirka hönnun gerir það að verkum að ökumaður þarf aðeins að horfa á einn stað til þess að ná í flest allar upplýsingar og því veldur það lágmarkstrufllun í akstri. Jafnframt hefur stjórnborðinu í miðju mælaborðins verið breytt verulega og það fært í stílinn. Bæði er það mun mýkra í útliti en áður en jafnframt hefur notagildi þess verið aukið. Lýsingin í mælaborðinu er með nýjum lit, svokölluðum Ice Blue, sem mun vera mun þægilegri fyrir augu ökumannsins í myrkri og skapar jafnframt notalegra og þægilegra umhverfi.
Vert er að nefna að nýji Ford Escape er bíll sem leggur sitt að mörkum til að minnka áhrif á umhverfið. Áklæði bílsins eru að öllu leyti úr endurunnum efnum en talið er að þess vegna muni við fjöldaframleiðslu bílsins sparast um 900 tonn af koltvísýringsefnum, um 7 milljónir kílówattstunda af rafmagni og ríflega 2 millónir lítra af vatni.
Jafnframt er nýr Escape fáanlegur með svokallaðri blendingsvél (e. hybrid) sem getur gengið á rafmagni að öllu leyti eða á bensíni að öllu leyti. Þegar bíllinn gengur eingöngu fyrir rafmagni nær hann allt að 40 kílómetra hraða á klukkustund sem hentar vel í innanbæjarakstri. Þess ber að geta að þegar hlutfall rafmagns er minna er hámarkshraðinn meiri en því má velta fyrir sér hvort þörf sé á meiri hraða á álagstímum í umferðinni. Brimborg hefur lagt áherslu á það við Ford að fá blendingsútgáfuna inn til Íslands en því miður er hann ekki ætlaður til útflutnings eins og stendur. Vonandi verður breyting þar á en nýi Ford Escape er væntanlegur til landsins í maí.
Staðalvél bílsins er 2,3 lítra, 16 ventla Duratec vél sem framleiðir allt að 153 hestöflum en einnig er hægt að fá 3 lítra, 24 ventla V6 Duratec vél sem framleiðir allt að 200 hestöflum. Dráttargeta þeirrar vélar er afar góð en með fjögurra gíra sjálfskiptingu getur hún dregið allt að 1.600 kílóum.
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan