Fiesta ST150 er með 2ja lítra vél sem er hvorki meira né minna en 150 hestöfl, sem er gríðarmikið fyrir bíl sem er aðeins um eitt þúsund kíló að þyngd, Hröðunin 0-100 km aðeins 8,4 sek. Útlitið er sérlega sportlegt. Að innan er hann ekki síður glæsilegur enda setja ST sportstólarnir sem eru með leður og tau áklæði sterkan svip á bílinn auk fleiri atriða svo sem álpedala, sport-stýri, ST-ál/leður gírstangarhnúður o.m.fl.
Aksturseiginleikar eru frábærir og hefur bíllinn hlotið gríðarlega góða dóma hjá helstu bílablöðum í Evrópu. Sport fjöðrun er í bílnum ásamt sérstökum ST gírkassa og sérlega öflugum bremsum. Frábærlega skemmtilegur akstursbíll á hreint frábæru verði. Brimborg býður Fiesta ST150 á aðeins kr. 1.750.000.-. Verð sem kemur virkilega á óvart.
Komdu núna í Brimborg og tryggðu þér eintak, söluráðgjafar Ford taka vel á móti þér.
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan