Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012
Ford | fös. 16. mar. 2007

Auknar vinsældir Ford jeppa á Íslandi

Ford Explorer er nánast uppseldur
Ford Explorer er nánast uppseldur
Jeppar frá Ford njóta aukinna vinsælda meðal Íslendinga sem sést best á því að sala á slíkum jeppum hefur gengið mjög vel hjá Brimborg á undanförnum mánuðum. Sala hefur verið umfram allar áætlanir og nú er svo komið að skortur er á Ford jeppum hjá Brimborg enda fyrirtækið ekki getað annað eftirspurninni eftir þessum vinsælu jeppum.

Expedition uppseldur, ný kynslóð væntanleg

Flaggskipið Ford Expedition er gott dæmi. Hann seldist upp í febrúar hjá Brimborg en með vorinu er von á nýjum og breyttum Expedition jeppa. Mjög mikill áhugi er fyrir nýja bílnum sem er gjörbreyttur að utan og innan ásamt því að undirvagn hefur verið styrktur enn frekar. Staðalbúnaður hefur verið aukinn verulega og einnig er nú mögulegt að sérhæfa bílinn enn frekar að þörfum hvers og eins með úrvali aukabúnaðar.

Brimborg hefur þegar hafið að taka við sérpöntunum en allar upplýsingar er að fá hjá ráðgjöfum Brimborgar. Von er á fyrstu bílum í vor en verðið verður kynnt um næstu mánaðarmót. Verðið á eftir að koma á óvart. Brátt koma myndir af nýrri kynslóð Ford Expedition á vef Brimborgar. Fylgstu með. 

Ford Explorer og Explorer Sport Trac –frábærar viðtökur

Frábær sala hefur verið í Ford Explorer lúxusjeppanum og er hann nánast uppseldur og næstu sendingar til apríl loka nánast uppseldar. Við vorum að fá sendingu af Ford Explorer SportTrac sem er pallbíla útgáfan af Explorer. Glæsilegur og sportlegur bíll fyrir þá sem hafa útiveru og sport að lífstíl því þar hentar hann alveg frábærlega. Verðið er einnig sérlega hagstætt, ekki síst þegar tekið er mið af ríkulegum búnaði. Komdu núna því við eigum nokkra bíla á lager.

Ford Escape uppseldur, nýr væntanlegur

Escape jeppinn er nú uppseldur en þessir jeppar eru á frábæru verði miðað við stærð, búnað og gæði. Ný kynslóð, mikið breytt að innan sem utan, af Ford Escape er væntanleg í lok maí. Brátt koma myndir af nýrri kynslóð Ford Escape á vef Brimborgar. Fylgstu með. 

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli